Heimili og skóli - 01.08.1962, Síða 47
HEIMILI OG SKÓLI
99
Evrópu 4—5%. í mörgum löndum
Evrópu er þessi tala aðeins 1% eða
minna, en í mörgum löndunr Afríku
er þessi tala um 95% eða meira. Að-
eins í hinum vestræna heimi eru um
45 milljónir manna ólæsir, og er þá
auðvitað miðað við einstaklinga, sem
komnir eru af barnsaldri, svo að allt
tal unr hina háþróuðu menntun Vest-
urlanda virðist ekki vera í samræmi
við veruleikann.
Af 860 milljónum barna og ungl-
inga frá 5—19 ára, sem nú lifa í heim-
inum, liafa aðeins 30 af hundraði, eða
munu hafa, möguleika til að ganga í
barna- eða unglingaskóla, og aðeins
7% í hærri skóla. Handa hinum 63
af hundraði eru hvorki til skólar né
kennarar. í 40 löndum fá innan við
40% barnanna reglubundna kennslu.
í 23 öðrum löndunr milli 40 og 60%.
Með nokkrum undantekningum eru
yfirleitt miklu fleiri konur ólæsar en
karlar. í Grikklandi eru þrefalt fleiri
konur ólæsar en karlmenn.
Þessi ömurlega upptalning sýnir
hversu aðkallandi það er að hefja stríð
gegn fáfræðinni. Bættar samgöngur og
alls konar hnattræn þjónusta valda því
að heimurinn er að „minnka“. Á
hverjum einasta degi segja fréttirnar
okkur frá vandamálum hinna „fjar-
lægu Austurlanda“ eða hinnar „myrku
Afríku“, vandamálum, sem við getum
ekki látið afskiptalaus. Sumir menn
hrista höfuðið hverju sinni, sem veitt-
ar eru fjárhæðir til hinna vanþróuðu
landa, en þegar á allt er litið er þessi
hjálp aðeins tilraun til sjálfshjálpar. Á
meðan meiri hlutinn af íbúum hinna
vanþróuðu landa er bæði ólæs og
óskrifandi, er óhugsandi að komið
verði upp atvinnuvegum, senr fram-
leiða útflutningsvörur eða koma upp
mörkuðum fyrir útflutningsvörur okk-
ar. Hið prentaða og ritaða mál er
lykillinn að öllum viðskiptum þjóða á
milli.
Herferðin gegn fáfræðinni er hafin,
en nær enn of skammt. Þær 700
milljónir manna, senr að mestu eru
þeldökkar þjóðir, taka engin risastökk
í þessu efni á nokkrum áratugum. Það
er langt bil frá hinum frumstæðu trú-
arbrögðum þeirra og kynþáttahleypi-
dómum til siðmenningar 20. aldarinn-
ar. Þrátt fyrir góðan tilgang og vilja,
getur svo farið, að þar gerist mörg
örlagarík mistök. Þúsundir af nýjum
skólum, ásamt kennurum þeirra, bera
jrarna mikla ábyrgð gagnvart öllu
nrannkyninu. Það veltur ekki lítið á
þeim, livort mannkynið ber gæfu til
að lifa í sátt og friði í skjóli alþjóð-
legs samstarfs eða ekki.
Folkeskolen.
Lausleg þýðing. H. J. M.
Gjörið svo vel að verzla við þá, sem
auglýsa í Heimili og skóla.
Heimili og skóli vill kaupa 1. hefti
1. árgangs og greiðir 25.00 kr. fyrir
heftið.
Útgefendur.
Gjörið svo vel að láta það ekki
bregðast að tilkynna bústaðaskipti til
afgreiðslunnar.
Afgreiðslumaður.