Læknaneminn - 01.07.1967, Síða 5
Þorvaldur Veigar Guðmundsson, læknir:
Parathyroid Hormón
og Thyrocalcitonin
Bein eru í stöðugri endurnýjun
eins og aðrir vefir líkamans. Nið-
urbrot og uppbygging þeirra er í
jafnvægi í heilbrigðum og full-
vöxnum líkama. Beinin eru byggð
upp af tiltölulega fáum frumum
en miklu af millifrumuefni.
Millifrumuefnið er myndað úr
collagenfibrillum, sem tengdar
eru saman með mucopolysaccarid.
Basiskir calciumfosfatkrystallar
sitja á eða í collagenfibrillunum.
Þessir krystallar eru um það bil
tveir þriðju hlutar þurrefnis bein-
anna. Ýmsir aðrir jónar, svo sem.
Na+, K+, Mg++, Cl-, F- og OH
eru einnig í beinkrystöllunum. í
beinunum eru um það bil 99% af
calcuim og 70% af fosfór
líkamans. Það er því aug-
Ijóst að calcium og fosfórefna-
skiptin annarsvegar og niðurbrot
og uppbygging beina hinsvegar,
eru nánast tvær hliðar á sama
hlut. Nú eru þekkt tvö hormón,.
parathyroid hormón (PTH) og
thyrocalcitonin (TCT), sem halda
beinunum, calcium- og fosfór-
magni blóðs og annarra líkams-
vökva í jafnvægi.
Parathyroid hormón
Parathyroid hormón er poly-
peptid með mólekúlþunga um það
bil 8500. Það er líklega ein amino-
sýrukeðja. Þó að brotnir séu hlut-
ar af mólekúlinu, hefir það samt
nokkur biologisk áhrif.
Á undanförnum árum hefir
þekking á verkun parathyroid
hormónsins aukizt mikið. Megin-
orsök þess er, að 1959 tókst að
vinna hormónið hreint úr para-
thyoroid kirtlum nautgripa. Nú
hefir aðferðin við hreinsunina
verið fullkomnuð og einfölduð, svo
að tiltölulega auðvelt er að vinna
næstum hreint parathyroid
hormón á hvaða rannsóknarstofu
sem er. Það, að auðvelt er að fá
hreint hormón, hefir gert kleift,
að fullkomna radioimmunoassay, *
* Radioimmunoassay er mjög næm
aðferð til að mæla hormón í blóði. Hún
var upphaflega notuð til að mæla insu-
lin, en nú er hægt að nota hana tii að
mæla flest proteinhormón. Aðalatriðin
í aðferðinni eru:
1. Framleiða mótefni gegn hormóninu.
2. Binda geislavirkt joð á hreint
hormón (H—I131).
3. Incubera
a) Mótefnið.
b) Geislavirkt hormón og sýnið.
með óþekktu magni af hormóni. Mót-
efnið bindur hormónið. Magnið af
H—I131 sem bindzt á mótefni stendur í
öfugu hlutfalli við magn hormónsins í
sýninu.
Eftir incubationina er bundið hormón
(B) og óbundið hormón (F) skilin að
með eleetrophoresis. Geislavirknin f
hverjum hluta er mæld og hlutfallið
B/F fundið. Út frá því hlutfalli og öðr-
um B/F hlutföllum, þar sem notað var
þekkt magn af hormóninu (standard-
kúrfa) er hægt að reikna hormónmagn-
ið í sýninu. Með þessari aðferð er hægt
að mæla minna en eitt microgram af
hormóni.