Læknaneminn - 01.07.1967, Side 8
8
LÆKNANEMINN
Verkun thyrocalcitonins.
Thyrocalcitonin lækkar calcium
og fosfór í blóði með því að
stöðva niðurbrot beina. Þetta hef-
ir verið sannað með allflóknum
tilraunum á lifandi dýrum, sem
gefið hefir verið geislavirkt
calcium. Einnig má sýna fram á
þetta með því að rækta bein í
,,tilraunaglasi“. Ef PTH er bætt í
ræktunarvökvann eykst niður-
brot beinsins. Ef jafnframt er
bætt TCT í ræktunarvökvann,
stöðvast niðurbrot beinsins. Ef A-
vítamani er bætt í glasið eykst
niðurbrot beinsins. Thyrocalciton-
in stöðvar einnig verkun þess.
Verkun TCT er því ekki ein-
göngu sú að stöðva verkun PTH.
Það hefir fulla verkun í dýrum,
sem parathyroid kirtlarnir hafa
verið teknir úr, svo framarleva
sem calcium í blóðinu er haldið
eðlilegu með réttu fæði. Aftur á
móti er verkunin lítil eða engin
ef calcium er miög lágt. Athug-
anir á verkun thyrocalcitonins á
nvru hafa gefið tvíræðar niður-
stöður. Sumir rannsakendur hafa
ekki fundið nein áhrif, aðrir hafa
fundið að thvrocalcitonin eykur
útskilnað fosfórs, þ. e. TCT hefir
þar svipuð áhrif og PTH. Þó geta
þessi hormón ekki aukið verkun
hvors annars. Ef gefið er TCT
eykst útskilnaður á fosfór. Sama
gerist ef gefið er PTH, en er bæði
efnin eru gefin samtímis, fæst að-
eins verkun sem svarar til áhrifa
annars þeirra. Ekki hefir tekizt að
hafa áhrif á calcium upptöku frá
þörmunum með thyrocalcitonin.
Actinomycin D stöðvar ekki verk-
un TCT.
Lokaorð.
1 þessu yfirliti hefir verið stikl-
að á stóru og sagt lauslega frá
ýmsum tilraunum, sem hafa leitt
í Ijós verkanir hormónanna. I
stuttu máli: PTH eykur niðurbrot
beina, hækkar calcium og lækkar
fosfór í blóði, eykur útskilnað á
fosfór í nýrum og upptöku calci-
um frá nýrum og þörmum.
TCT stöðvar niðurbrot beina,
stöðvar verkun PTH á bein, lækk-
ar calcium og fosfór í blóði og
eykur líklega fosfórútskilnað
nýrnanna. Parathyroid hormón
hefir nauðsynlegu hlutverki að
gegna í líkamanum. Færa má
sterkar líkur fyrir því að thyro-
calcitonin sé einnig mikilvægt
hormón, þótt ekki sé það enn sann-
að.