Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1967, Side 26

Læknaneminn - 01.07.1967, Side 26
26 LÆKNANEMINN tekið þær upp á kerfisbundinn hátt. Enda er sálkönnun mjög fjarlæg dialektiskri efnishyggju. Sállækningaaðferðir Rússa hafa frá fyrstu verið í anda Pavlovs og gerðu þeir margar merkar lækn- ingatilraunir með skildögum, meðan kerfisbundnar sállækning- ar Vesturlandabúa byggðust nær eingöngu á sálkönnun. Má vera, að Bandaríkjamenn hafi heldur ekki verið hrifnir af að leita til Rússa um nýjar aðferðir. Enda voru það ekki Bandaríkjamenn heldur einkum Bretar, sem loks gerðu sér grein fyrir möguleikum lærikenninganna í þágu sállækn- inga. Það er ekki fyrr en eftir 1950, að hrevfin0- fer að komast á þessi mál. Árið 1950 settu J. Dollard og N. E. Miller fram ítarlegar kenn- ingar um bað, hvernig sjúkleg ein- kenni verða til eftir lögmálum lærikenninganna, og bentu á hugsanlegar aðferðir til umfangs- meiri lækninga en reynt hafði verið áður með bessum aðferðum. Um svipað leiti heldur H. J. Evsenck uppi hörðum árásum á sálkönnun og á næstu árum setur hann fram sínar kenningar um persónuleikann og lækningaað- ferðir samkvæmt lærikenningun- um. Hefur hann stiórnað tilraun- um í bessa átt á Maudsley Hospi- tal í London. Árið 1958 birtust kenningar Suður-Afríkumannsins Wolpes, þar sem hann setur fram vel skil- greindar aðferðir til sállækninga. Landí hans Lazarus skrifaði einn- ig fiölda tímaritsgreina um til- raunir sínar með atferlislækning- ar. Á árunum 1950—1960 birtust all^arp-ar tímaritsgreinar um at- ferlislækningar og lýstu góðum árangri með aðferðinni. Eftir 1960 hefur atferlislækningum verið beitt í síauknum mæli og flestar rannsóknir hafa sýnt, að árangur af þessum lækningum er jafngóður og í flestum tilfellum betri en með sálkönnunaraðferðinni, og alltaf skjótari. Aðferð Wolpes byggist á tals- vert flóknum kennisetningum, einkum eftir fyrirmynd lærikenn- ingu Hulls, lýsingu Sherringtons á taugastarfseminni, tilrauna M. C. Jones, sem fyrr getur og aðferð Jacobsons við taugaslökun. Wolpe telur, að neurotisk hegðun feli í sér þrálátar venjur, sem hafi ver- ið lærðar eða skildagaðar undir kvíðablöndnum kringumstæðum og rót atferlisins sé kvíði. I sam- ræmi við tilraunir með dýr heldur Wolpe því fram, að ef viðbrögð, sem undir venjulegum kringum- stæðum virka gegn kvíða, eru fengin fram um leið og kvíðvekj- andi áreiti er sett fram, munu tengslin milli hins kvíðvekjandi áreitis og kvíðaviðbragðsins veikjast. Taugaslökun eftir aðferð Jacob- sons hefur þótt bezt fallin til að hefta kvíða. Taugaslökun er þá óskildagað andsvar, sem með ná- lægð sinni við skildagaða and- svarið, kvíðann, veikir það eða fellir brott. Aðferð þessi hefur verið nefnd „kerfisbundin ónæm- ing“ (systematic desensitisation). Aðferðin er fólgin í því, að eftir kliniska athugun eða viðtöl við sjúklinginn eru fundin þau áreiti, sem vekja kvíða eða hræðslu hjá honum. Þeim er raðað eftir því, hversu mikinn kvíða þau vekja. Sjúklingurinn er síðan látinn slappa af, annaðhvort eftir aðferð Jacobsons eða með léttri dáleiðslu. Hin kvíðvekjandi áreiti eru síðan lögð fyrir sjúklinginn, fyrst það vægasta. Honum er fyrirlagt að ímynda sér eða sjá fyrir sér þær

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.