Læknaneminn - 01.07.1967, Page 29
LÆKNANEMINN
tg
KENNSL UMÁL
Sigurður Friðjónsson, stud. med.:
Á þessari öld hafa tækni og hag-
nýtt vísindi haldið innreið sína í
líf almennings í mörgum löndum.
Á tiltölulega skömmum tíma hafa
þjóðfélagsaðstæður gerbreytzt og
þar með líf alls þorra manna. En
þessar breytingar eru ekki liðin
tíð heldur eru þær enn í fullum
gangi, e.t.v. hraðari og meiri nú
en nokkru sinni áður. Þessar að-
stæður hafa búið uppalendum
vanda sem varla hefur þekkst í
líkum mæli á liðnum öldum. Þar
sem menn gátu áður látið sér
nægja að læra t.d. eina iðn, sem
framfleytti þeim alla ævi, mega
nú æ fleiri búast við að skipta um
starf á miðjum aldri e.t.v. oftar
en einu sinni. Þessa gætir mest í
háþróuðum ríkjum eins og t.d.
Bandaríkjunum, þar sem sérhæfð
störf skapast og hverfa aftur á
minna en einum mannsaldri. Ein-
föld og óbrotin störf verða í æ
ríkara mæli unnin af vélum, en
þess í stað myndast þörf fyrir
sérmenntað fólk til að teikna,
smíða og stjórna vélunum. Á síð-
ustu árum hefur þessi þróun
gengið enn lengra. Það er jafnvel
óþarft að menn stjórni vélunum,
það má hafa enn aðrar vélar til
þess líka (cybernetics). Allt þetta
hefur fært þeim þjóðum auð og
Thorndike, E. L. Animal intelligence.
New York: Macmillan, 1911.
Watson, J. B. & Rayness. R. Conditioned
emotional reaction. J. exp. Psychoi.,
1920, 3, 1—4.
Wolpe, J. Psychotherapy by reciprocal
inhibition. Stanford. Calif. Stan-
ford Univer. Press, 1958.
hagsæld sem þessa njóta og orðið
tákn hagsældar þeim þjóðum, sem
skemmra eru á veg komnar. Á
þennan hátt hefur hagur og af-
koma heilla þjóðlanda orðið með
nýjum hætti beinlínis háður mennt-
un og hugviti íbúanna. Það er ekki
lengur nóg að standa á gömlum
merg, hver sú þjóð sem ekki leitar
stöðugt nýrra úrræða er dæmd til
ósigurs í samkeppni við aðrar
þjóðir. Mönnum hlýtur því að vera
gleðiefni að sjá merki þess að líka
hér á þessu landi er til framsýni
og stórhugur. Fyrir nokkrum mán-
uðum var skipuð af menntamála-
ráðuneytinu nefnd prófessora og
annarra til að gera áætlun um
þróun Háskóla íslands næstu 20
árin. Nefnd þessari er ætlað að
ljúka störfum fyrir sept. ’68. Slíkt
verkefni er bæði erfitt og vanda-
samt en sannarlega einnig tíma-
bært og nauðsynlegt. H. í. þarfn-
ast stuðnings ákveðinnar stefnu-
skrár, sem einnig er nægilega al-
menn til að hindra ekki starfsemi
hans á nokkurn hátt. Háskóli Is-
lands hefur til þessa fyrst og
fremst verið undirbúningsskóli
embættismanna þótt í lögum hans
segi að hann skuli vera „vísinda-
og kennslustofnun". Megintak-
mark í þróun Háskólans næstu 20
ár hlýtur að vera að gera Háskól-
ann að raunverulegri vísindastofn-
un allra þeirra greina, sem þar er
fengizt við.
Við áætlanir um framtíð Háskól-
ans vaknar að sjálfsögðu spurn-
ingin hvað beri að kenna. Ber að
stefna að því að f jölga deildum Há-