Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1967, Side 32

Læknaneminn - 01.07.1967, Side 32
3B LÆKNANEMINN liðinn frá fyrstu kynnum. Það er ekki lítils virði að kennsluhættir við háskóla séu þannig að stúdent- ar séu ekki rígbundnir við ákveðna stundaskrá. Þennan kost hefur gamla kerfið haft og stúdentar eru þess ófúsir að sjá honum í nokkru þröngvað. Enn má nefna að at- huganir sálfræðinga benda ótví- rætt til að menn muni síður það sem lært er á skemmri tíma að öðru jöfnu. Eitt hinna alvarlegu vandamála sem blasa við nútímavísindum er hin mikla skipting þeirra í sér- greinar og enn smærri undirflokka. Þessa þróun má auðvitað rekja til hinnar miklu útþenslu vísindanna sem hefur verið einkenni þessar- ar aldar og hinnar síðustu. Margir mætir menn hafa litið til þessarar þróunar með skelfingu. Aðall mannsins hefur einmitt verið að geta gengið að hverju verkefni með opnum huga og lagað sjálfan sig að hinum ólíkustu aðstæðum. Hin mikla sérmenntun og sérhæf- ing gæti ef hún gengi of langt orðið verri en engin menntun, hún gæti orðið sá fjötur er svipti manninn að lokum frelsi sínu og byrgði honum sýn. Menn virðast oft þeirrar skoðunar að hér sé um óhjákvæmilegan fylgifisk vísinda- legra framfara að ræða og reynd- ar eina af forsendum þeirra. Menn sætta sig því við sérhæfinguna möglunarlaust og þykir meira að segja oft óþarflega langt líða þang- að til þeir geta setzt í helgan stein einhverrar þröngrar sérgreinar. Ekki verður véfengt að sérfræð- ingafyrirkomulagið er óhjákvæmi- legt eins og málum er nú háttað í mörgum víðfeðmum greinum eins og t.d. læknisfræði. Hins vegar skal á það bent, að margt af því, sem er mikilvægt efni í sérgrein mun naumast nokkru sinni fá mikið al- mennt vísindalegt gildi. Gagnger þekking á smæstu einkennum sem gerir mögulega hárfína mismuna- greiningu á sjaldgæfum hjarta- sjúkdómum flytur okkur ekki hóti nær skilningi á orsökum þessara sömu sjúkdóma. Þess vegna verð- ur ekki undan vikizt að gagnrýna breytingar á kennsluháttum, sem virðast til þess fallnar að auka veg sérgreina. Af sömu ástæðu og annaskipanin getur ekki talizt stuðla að alhliða námi, er hætt við að hún geri læknanám að einfaldri summu náms í sérgreinum, en fæstir nemenda muni nokkru sinni gera sér heilsteypta mynd af grein- inni allri. Við gætum sagt að hlut- verk háskóla væri að dýpka skiln- ing á því er tengdi saman og sam- hæfði ólíkustu hluti í hverri grein. Það virðist því óneitanlega erfitt að hugsa sér nýja kennsluskipan þar sem meginþungi þessa verk- efnis lendir á nemendum sjálfum án verulegrar íhlutunar deildarinn- ar. Ekki má skilja þessa gagnrýni svo að ekkert sé nýtilegt í þeim breytingartillögum sem gerðar voru í anda Arne Martinsen. Hin aukna áherzla á verklegt nám, til- raunir til að auka mikilvægi beinna athugana og náms stúdenta á spítölum, skipting í tvo hluta í stað þriggja áður eru allt spor í rétta átt. Hins vegar er nauðsynlegt að gagnrýni komi fram strax á þessu stigi í þeirri von að síður komi til alvarlegs ósamkomulags innan Há- skólans eftir að stuðningur stjórn- arvalda við breytingarnar er feng- inn. Þeir menn sem láta sig mál Háskólans einhverju varða verða að gera afstöðu sína sveigjanlega og endurskoða hana oft. Við tök- um undir orð Jóhanns Sigurjóns- sonar er hann kveður um báruna:

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.