Læknaneminn - 01.07.1967, Page 36
36
LÆKNANEMINN
um stöpli, hvernig sem viðrar.
Þetta er gömul bygging eins og
vel flest sjúkrahús önnur í Lund-
únum. Hún mun reist laust fyrir
1840. Hugmyndin að stofnun
sjúkrahússins er athyglisverð. I
þann tíð var það algengt, að
læknanemar stunduðu lækningar
jafnframt námi. Höfðu þeir þá
sjúklingahóp úr nágrenni sínu til
lækninga. Einum slíkum lækna-
nema rann til rif ja eymd og bjarg-
arleysi þeirra sjúklinga, sem leit-
uðu hjálpar hans. Hann kom því á
fót sjúkrastofu fyrir bágstadda í
húsi sínu. Óx svo starfsemin af
elju þessa manns og annarra, sem
hann studdu, að sjúkrahúsið var
reist. Slíkt einstaklingsframtak
einkennir þau sjúkrahús brezk,
sem við heimsóttum. Gerast þar
varla sjúkrarúm án yfirletrana
með nöfnum gefenda eða þeirra,
sem gefið er til minningar um.
Sumir hafa jafnvel verið svo ör-
látir, að heilir sjúkragangar bera
nöfn þeirra. Virðast allflest
sjúkrahús að miklu leyti byggð
fyrir stuðning og gjafir einstak-
linga eða smærri hópa. Nú eru
um 300—400 sjúkrarúm í Charing
Cross sjúkrahúsinu sjálfu, en það
myndar samsteypu ásamt fjórum
öðrum, sem hafa nána samvinnu.
Ráðgert er að byggja um 1000
rúma sjúkrahús í náinni framtíð
yfir starfsemi hinna fimm.
Við kynntumst að sjálfsögðu
bezt fæðingar- og kvensjúkdóma-
deildum sjúkrahússins, og mótast
mat okkar af því. Nám við Char-
ing Cross læknaskólann er að
ýmsu frábrugðið því, sem gerist á
Islandi. Þar eru læknanemar t. d.
tvo mánuði á fæðingardeild og
tvo mánuði á kvensjúkdómadeild.
Yfirlæknir þessara deilda er jafn-
framt kennari í þeim greinum við
læknaskólann. Hann er ungur og
mjög áhugasamur um kennslutil-
högun, og er kennsla á deildum
hans bæði árangursrík og góð að
okkar dómi. Allir læknar deild-
anna taka virkan þátt í kennslu
læknanema, og fer hún fram sam-
kvæmt kennsluskrá, bæði á stofu-
gangi og í sérstökum kennslu-
stundum í frjálsu formi (tutori-
als). Þar taka læknar eitthvað
ákveðið efni til umræðu, spyrja
læknanema og svara spurningum
þeirra. Er oft um að ræða vanda-
mál af deildunum, sem þá eru
fersk og persónuleg, þar sem
læknanemar hafa fylgzt með við-
komandi sjúklingum og stundað
þá.
Á kvensjúkdómadeild eru um 30
rúm, og fara aðgerðir fram tvo
daga vikunnar. Læknanemar taka
sjúkraskrá af konunum og skoða
þær, en kandidat leiðbeinir þeim
við gynecologiska skoðun. Hver
læknanemi stendur svo fyrir máli
sínu á stofugangi samdægurs,
rekur sögu sjúklings og rökstyð-
ur sjúkdómsgreiningar sínar fyr-
ir þeim lækni, sem ætlar að fram-
kvæma aðgerð á sjúklingi. Dag-
inn eftir aðstoðar læknaneminn,
ásamt kandidat, við aðgerð á þeim
sjúklingum, sem hann hefur tek-
ið á móti. Fær hann þá jafnan að
bera saman gynecologiska skoðun
sína á sjúklingi vakandi og undir
svæfingu. Stundum fá læknanem-
ar að gera minni háttar aðgerðir
sjálfir undir eftirliti og með að-
stoð læknis. Hver læknanemi fylg-
ist síðan með þeim sjúklingum,
sem hann hefur skoðað, meðan
þeir eru á deildinni, og sinnir að
jafnaði 4—5 sjúklingum á viku.
Tvo morgna vikunnar sitja lækna-
nemar með lækni í ferlivistar-
deild (out-patient clinic), skoða
og fylgjast með sjúklingum, sem