Læknaneminn - 01.07.1967, Side 41
LÆKNANEMINN
il
en má ekki borga ykkur út fyrr
en þið hafið þetta spjald í hönd-
unum. Þið arkið enn af stað, og
nú er ferðinni heitið til Ministry
of Social Security Local Office,
þar sem þið gefið enn eina ævi-
skýrsluna o g fáið að launum
appelsínugult kort, sem á að
sanna, að þið séuð skuldlaus við
skatta- og skyldutryggingar.
Þið rekið það framan í gjaldker-
ann og fáið ávísun fyrir launum
ykkar. Ef þið þurfið á þessum
peningum að halda, áður en þið
farið úr landi, skulið þið ætla ykk-
ur góðan tíma til að fá þessari
ávísun breytt í pundseðla. Það
getur nefnilega vel hugsast, að
sjúkrahúsið hafi verið svo hugul-
samt að opna fyrir ykkur spari-
sjóðsreikning í einhverju útibúi
Loyd’s banka, og er þá ekki hægt
að leysa ávísunina út, heldur verð-
ur að finna viðkomandi útibú og
leggja hana þar inn. Þetta virðist
geta hent, þótt þið hafið marg-
tekið það fram, að þið þurfið að
nota þessa peninga strax. Mönn-
um til huggunar skal þó tekið
fram, að þegar öll sund virðast
lokuð, og skuldafangelsi blasir
við, geta Bretar verið frábærlega
hjálpsamir og fórna þá með
ánægju bæði tíma og orku til þess
að biarga ykkur og greiða úr þeim
skrifstofuhnútum, sem þeir hafa
flækt ykkur í.
G. A. — H. Þ. V.
Oft kemur bót eftir höl
„Tannlæknanámið tekur venjulega 6 ár, sex ára sífelldur þræl-
dómur, lestur og aftur lestur.Strax á fyrsta ári hefst púlið, því
að þá má segja að við séum við námið frá 8 á morgnana til sjö á
kvöldin, hvern einasta dag, nema hvíldardaginn að sjálfsögðu, en helg-
arnar fara að langmestu leyti í lestur, því að lítið er unnt að koma
lestrinum við, þegar unnið er mestan hluta dagsins".
Auðvitað skemmir svona vinnuálag sálina að lokum, eins og eftir-
farandi hallucinationir og paranoia bera með sér.
.... „Læknanemar hafa nú á undanförnum árum fengið aðstöðu
sína stórbætta til að vinna fyrir miklu kaupi meðan á námi þeirra
stendur. Margir þeirra hafa 2—300 þúsund krónur á ári fyrir vinnu
á sjúkrahúsum".....
(Úr viðtali við nokkra tannlæknanema í Vísi 27. júní s.l.).