Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1967, Síða 45

Læknaneminn - 01.07.1967, Síða 45
LÆKNANEMINN púlsar eru vandlega þreifaðir, ætti það að tilheyra hverri rutinu- skoðun, að ekki sé talað um skoð- un á sjúklingi með háþrýsting, að þreifa þá. Háþrýstingur er eitt einkennið við toxemia in graviditate. Sjúk- dómurinn kemur því aðeins fyrir hjá gravid konum, primer orsök er óþekkt og umdeilt er hvort hann valdi áframhaldandi háþrýst- ingi post partum. Einkenni: Segja má, að sjúkl- ingar með háþrýsting án fylgi- kvilla hafi fá eða engin einkenni, a. m. k. ef þeir vita ekki um, að þeir hafi ,,of háan blóðþrýsting“. Oft kvarta sjúklingar um almenn- an slappleika, þreytu og slen og stundum höfuðverk, sérlega við svæsinn eða illkvnja blóðþrýsting. Venjulega er höfuðverkurinn stað- settur í hnakka og er verstur að morgni. Þó að margir sjúklingar með háþrýsting kvarti um höfuð- verk, er lítið upp úr honum leggj- andi, ef sjúklingur veit, að hann hefir hækkaðan blóðþrýsting, eða ef hann hefir verið settur á með- ferð vegna þess. Sama er að segja um önnur almenn einkenni, en hafa verður þó í huga, að með- ferðin geti að einhverju leyti or- sakað þau. Obiectiv einkenni eru einnig fá. Þó má oft fá grun um, að blóð- þrýstingur sé hækkaður, er radi- alis púls er þreifaður, en hann er oft þungur og lyftandi við há- þrýsting. Sama er að segja um ictus cordis. Sterkur útbreiddur ictus vetur gefið grun um háþrýst- ing. Ef ophthalmoscopia er fram- kvæmd, má stundum sjá háþrýst- ingsbreytingar (vide infra). Greining: Vegna þess hve subjectiv og objectiv einkenni eru fá og óáreiðanleg, er háþrýsting- ur greindur með blóðþrýstings- b5 mælingu. Nákvæmast er að mæla beint úr slagæð, en það er nú aldrei gert. Notaður er því blóð- þrýstingsmælir, annað hvort kvikasilfursmælir (bezt) eða manometer. Gerð mæla og tækni við mælingu verður ekki nákvæm- ar lýst hér, en þó er rétt að hafa eftirfarandi í huga: Hafa man- chettu af réttri breidd (samanber mælingu hjá börnum). Gott er að mæla systoliskan þrýsting fyrst með palpation, áður en mælt er með stethoscopi. Taka síðan diastoliskan þrýsting, þegar hljóð lækkar skyndilega, en ekki þegar það hættir alveg að heyrast. Diastoliskur þrýstingur er venju- lega lítið eitt hærri er sjúklingur situr eða stendur, en systola lægri, er sjúklingur stendur. Áreynsla, geðhrif, o. fl. geta vald- ið hækkun á systoliskum þrýst- ingi, en hafa lítil áhrif á diastol- iskan þrýsting. Ef mælt er á mjög sverum handlegg, mælist þrýst- ingur hærri (5—15 mm.) miðað við intraarterial þrýsting og get- ur þá verið æskilegt, að nota breiðari manchettu. Ef hækkaður blóðþrýstingur hefir verið mældur, er nauðsyn- legt strax í byrjun með tilliti til nrognosis sjúklings og einnig hvort hef ja skuli meðferð, að gera sér grein fyrir, hvort sjúklingur hefir primerar eða secunderar brevtingar í öðrum líffærum, sem gefið gætu ákveðna indication fyrir meðferð eða relativa contraindication fyrir meðferð, og hver verið gæti orsök háþrýstings- ins, o. fl. Það er í fyrsta lagi mikilvægt að greina, hvort sjúklingur hefir aðeins háþrýsting eða hvort hann hefir háþrýstisjúkdóm (hyper- tensiv disease), þ. e. hvort há- þrýstingurinn hefir valdið sjúk-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.