Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1967, Page 49

Læknaneminn - 01.07.1967, Page 49
LÆKNANEMINN 49 mg á dag og aukið hægt upp i 20 -25 mg X 4 og allt að 200 mg á dag. 4. Methyldopa (Aldomet): Tal- ið hindra myndun noradrenalins, veldur útvíkkun á æðum, eykur nýrnastreymi. Gott lyf og virkt. Helztu aukaverkanir: Depressio mentis, sljóleiki, vökvaretentio (nota diuretica með), lyfjahiti (drug fever, sjaldgæft), hindruð lifrastarfsemi, haemolytisk ane- mia o. fl. Varast ber ost, saman- ber MAO-inhibitora. Dosis: Venjulega byrjað með um 250 mg X 2, smáhækkað upp í ca. 1,5 g. Fara þarf varlega með gamalt fólk. 5. Sympaticus blockerandi lyf: Hérlendis er mest notað guane- thidine (Ismelin). Þetta lyf er mjög virkt og á aðeins að nota við svæsinn háþrýsting. Nokkra daga tekur að fá verkun. Helztu aukaverkanir: Niður- gangur og impotens ejaculandi hjá karlmönnum. Veldur einnig oft orthostatiskri hypotensio og ber að vara sjúklinga við henni og fara varlega við sjúklinga með cerebral insufficience, coronar sclerosis og bilaða nýrnastarf- semi. Lyfið veldur bradycardi og getur veiklað hjartavöðvann og komið af stað hjartabilun. 6. Ganglion blockerandi lyf: Hérlendis er mest notað mecamyla- min (Mevasine). Þetta lyf er mjög virkt og notað aðeins við svæsinn háþrýsting. Ekki er ráðlegt að byrja meðferð nema á sjúkrahúsi. Helztu aukaverkanir eru þurrkur í munni og augum, obstipation (ad ileus paralyticus), truflun á þvag- látum, impotens og orthostatisk hypotensio. Dosis: 2,5-5,0 mg á dag, auka annan hvern dag eftir verkun upp í 20-40 mg. Encephalopathia hypertensiva: Þessi sjúkdómur er talinn orsak- ast af cerebral ischemiu vegna æðaspasma. Einkennin eru höfuð- verkur, sljóleiki, stundum ógleði og uppköst og fókal einkenni frá miðtaugakerfi. Meðferð er serpasil i. m. (1 X 2 mg.) eða Mevasin, e. t. v. magnesium sulfat eins og við eclampsia. KirurgisJc meðferð: Sympatec- tomia var áður mikið notuð að- gerð gegn háþrýstingi. Hún gaf sæmilega raun, en er mikil aðgerð og nú nær aldrei gerð vegna þess. Horfur: Mjög erfitt er að segja fyrir um horfur sjúklinga með há- þrýsting og hvort meðferð hafi áhrif á langlífi, en þó er talið sann- að, að meðferð lengi líf sjúklinga með illkynja háþrýsting. Perera telur meðalaldur frá greiningu vera um tuttugu ár, þar af % eða fimmtán ár án aukakvilla, en 14 eða fimm ár með aukakvillum. Margir geta lifað lengur, en á hinn bóginn er illkynja háþrýstingur, sem leiddi sjúklinginn til dauða á nokkrum mánuðum eða einu til tveimur árum, oftast úr uremiu, áður en lyfin komu til sögunnar. Þetta form er hins vegar sjald- gæft eða aðeins um 1% allra sjúklinga með háþrýsting, % hlut- ar sjúklinga eru karlmenn (flestir grannir, sbr. að sjúkdómurinn er algengastur hjá feitlaga konum). Dánarorsök sjúklinga með há- þrýsting er nú: 65—70% deyja úr hjartasjúkdómum, 10—15% úr sjúkdómum í heila og 5—10% úr uremiu. Einkum er coronar scler- osis slæmur aukakvilli (decom- pensatio cordis ekki nærri eins slæm), svo og nýrnabilun vegna háþrýstings. Verri horfur eru hjá karlmönnum. Horfur hvers einstaklings um sig verða því aldrei sagðar fyrir með neinni vissu. Reykjavík, 2. maí 1967 Kristján A. Eyjólfsson.

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.