Læknaneminn - 01.07.1967, Blaðsíða 51
LÆKNANEMINN
51
hefur verið fram á að um ofnæmi
er að ræða.
Contact dermatitis er einn hinna
algengustu húðsjúkdóma, og get-
ur meðferðin oft verið erfið. Or-
sakirnar eru ýmist ertandi efni,
sem valda útbrotum hjá mörgum
eða jafnvei flestum, sem eru í
snertingu við þau (primary irri-
tants) eða þá efni, sem sensitizera
aðeins örlítinn hluta þeirra, sem
nota þau (allergic sensitizers). í
fyrra tilfellinu er oft talað um
toxiskan contact dermatitis, en í
síðara tilvikinu um allergiskan
contact dermatitis. Mikið af út-
brotum á höndum til dæmis eru
contact dermatitis, og er þá oft
um einhvers konar atvinnusjúk-
dóm að ræða. Um 10% allra til-
fella, sem húðsjúkdómalæknir sér
í daglegu starfi eru útbrot á hönd-
um og má af því ráða, að margir
þjást af þessum kvillum. Eczema
á höndum verður stöðugt algeng-
ara í iðnaði og fjöldi fólks er frá
vinnu um lengri og skemmri tíma
vegna þess.
Það liggur í augum uppi hversu
erfitt er fyrir t.d. veitingaþjón,
hárgreiðslukonu, eða afgreiðslu-
stúlku að stunda störf sín með
hendurnar allar í útbrotum, að
maður tali nú ekki um fólk, sem
vinnur í matvælaiðnaði eða við
hjúkrun og lækningar. Sé húðin á
höndunum heilbrigð, þá er hún
tiltölulega bakteríusnauð, en jafn-
vel væg útbrot geta valdið því að
hún verður morandi í bakteríum.
Vessandi útbrot sérstaklega eru
hrein gróðrarstía fyrir bakteríur.
Þessir sjúklingar eru oft frá vinnu
lengi, þótt þeir hafi kannski ekki
m 'ög mikil óþægindi og gætu unn-
ið þess vegna, heldur vegna þess
að þeir eru hættulegir öðrum. Það
getur skipt miklu máli fyrir efna-
hag eða afkomu viðkomandi að fá
sem bezta og fljótasta lækningu.
Til réttrar sjúkdómsgreiningar og
til þess að finna orsökina er hér
sem endranær sjúkrasagan oft
mikilvægasti liðurinn. Skilyrði þess
að bezti árangur náist er, að orsök-
in finnist og sjúklingurinn geti
forðast hið ertandi efni eða aller-
genið, sem ofnæminu veldur. Það
er ekki nóg að spyrja sjúklinginn
hvort hann hafi ofnæmi fyrir ein-
hverju, heldur þarf að spyrja
ákveðnari spurninga og nefna þá
hluti, sem helzt geta komið til
greina. I sambandi við eczema á
nöndum, þá geta öll möguleg efni
sem sjúklingurinn vinnur við kom-
ið til greina, hvort heldur hann
er í iðnaði eða við önnur störf.
Ekki má heldur gleyma því, að
sjúklingurinn getur allt eins feng-
ið útbrot af þeim efnum, sem hann
er í snertingu við í frístundum sín-
um, eins og því, sem hann vinnur
við í aðalstarfi sínu. Það er mjög
mikilvægt að greina hér á milli,
því að fráleitt væri að krefia at-
vinnurekanda bóta fyrir hjúðsjúk-
dóm, sem orsakast af einhverju
tómstundagamni. Ertandi efni og
efni sem valda ofnæmi eru of
mörg til að telja þau upp. Meðal
þessara efna eru sápur, hreinsiefni
(detergents), snyrtiefni, ilmefni,
alls konar smyrsl, hvort sem þau
innihalda lyf eða ekki, plöntur,
hanzkar, hringir og armbönd svo
nokkuð sé nefnt. Eftir að ofnæm-
isútbrot eru byrjuð, geta ýmis al-
geng efni aukið ertinguna og má
nefna t.d. klór, bleikiefni, vax,
bón, handáburð og þurrkandi
krem. Þetta þarf allt að hafa í
huga þegar leitað er að orsökum
útbrotanna hjá sjúklingi með con-
tact dermatitis.
Ætla ég nú að fara nokkrum