Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1967, Síða 52

Læknaneminn - 01.07.1967, Síða 52
52 LÆKNANEMINN orðum um meðferð, einkum út- vortis meðferð. Almennt má segja að því svæsnari eða því meira akút sem útbrotin eru, þeim mun mild- ari eigi meðferðin að vera. Rakir bakstrar eru yfirleitt notaðir á akúta stiginu, og verka þeir betur ef hrúður og hreistur er fyrst hreinsað burt með blautum grisj- um. Þær má gjarna nota til hreins- unar á subakút og akút útbrotum, sem eru vesiculer og vessandi. Séu útbrotin ekki mikið vessandi má eins nota olívuolíu, og við krónisk hreistrug útbrot benzín eða car- bontetraklorid. Þá eru einnig á markaðnum ýmis hreinsiefni, sem innihalda ekki sápu. Við akút ec- zema viðhalda rakir bakstrar frá- rennslinu eða „drenera“ vessandi útbrot og koma í veg fyrir snögg- ar hitabreytingar í húðinni. Blautar umbúðir eru svíandi, draga úr kláða og flest efnin, sem notuð eru auk þess dálítið antiseptisk. Umbúðimar eiga að vera þykkar og falla þétt að útbrotunum, þeim á að halda vel rökum og helzt skipta þétt á þeim eða á svo sem 2 klst. fresti. Við útbrot á hönd- um er hentugt að nota hanzka, sem búnir eru til úr margföldu lagi af sáragrisju. Þeir hafa þann kost að það loftar vel í gegnum þá, og þá má þvo og nota aftur og aftur. Húsmæður geta unnið flest sín verk heima fyrir þótt þær noti svona hanzka vætta í alumin- ium subacetat upplausn, og sjúkl- ingar á spítala geta matast sjálfir og lesið með svona hanzka á hönd- unum. Hefur það auðvitað mikið að segja, að sjúklingurinn geti gert einföldustu störf án þess að það trufli meðferðina, en sé með- ferðin óþægileg verður raunin oft sú. að sjúklingurinn notar hana alls ekki, hversu góð sem meðferð- in annars er. Það lyf sem einna algengast er að nota í bakstra er aqua aluminii subacetatis, sem er mjög gagnlegt við hvers konar vessandi útbrot. Stöku sinnum er notuð kalium permanganat upplausn (1:5000) eða silfurnítrat upplausn (1:1000), en þessar tvær upplausnir eru óhentugar að því leyti, að þær geta litað og skemmt föt. Við subakút dermatitis hentar vel að nota lotio af einhverju tagi, sem er miklu fyrirhafnarminni meðferð en bakstrar, algengastar eru zink og calamine lotio. Lini- ment eins og t.d. linimentum zinci spissum er einnig hentugt, og sé kláði svæsinn má gjarna nota það, blandað með V2% menthol og 1% nhenol. Þetta er einkum praktískt lyf nái útbrotin yfir mikinn hluta iíkamans, og verkar oft eins vel og nýjustu steroida smyrsli, sem eru kannski 10 sinnum dýrari. Það er til lítils að skrifa upp á 20 g túbu af hydrocortison áburði eða 30 g af smyrsli fyrir sjúkling, sem hefur útbrot um mest allan líkam- ann en nægjanlegt magn af þess- um lyfjum fyrir einnar viku kúr í slíku tilfelli gæti kostað nokkur þúsund krónur umfram það sem nauðsynlegt væri. Að sjálfsögðu þarf að hafa kostnaðinn í huga, hvort sem sjúklingarnir borga lyf- in sjálfir eða einhverir aðrir fyrir þá. Smyrsli eða salvar (ungventum, ointment) eru meðal elztu og al- gengustu lyf ja í dermatólógíu. Þau samanstanda af lyfjum blönduð- um út í ýmisskonar fitu, ýmist dýrafitu (lanolino.fi.) eða mineral fitu (petrolatum, vaselín). Hentug mýkjandi smyrsli á þurra hreinstr- uga húð eru t.d. ungv. aquosum og sama smyrsi blandað til helminga með vatni. Smyrsli eru notuð til þess að draga úr kláða og einnig
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.