Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1967, Qupperneq 54

Læknaneminn - 01.07.1967, Qupperneq 54
LÆKNANEMINN 54 matorisk lyf á bólgur í húð, en hafa lítil áhrif þegar þau eru gefin inn í líkamann. Það skiptir því litlu máli hvort þau absorber- ast eða ekki. Það eru mjög fáar komplicationir við útvortis notkun steroida, þeir eru ekki gefnir sé um aktíva infection í húð að ræða, nema þá með antibiotica, og þeir eru kontraindiceraðir við herpes simplex infectionir í augum. Lang- varandi notkun á hinum nýrri sterkari steroida smyrslum eins og t.d. Synalar í húðfellingar, aðal- lega nára og handarkrika getur framkallað striae distensae, oft talsvert áberandi, einnig hef ég séð áberandi og útbreidd æðaslit eða telangiectasiur í andhti eftir notk- un þessara lyf ja bæði hjá börnum og fuhorðnum. Ætti því fremur að nota hydrocortison á andlit og í húðfellingar heldur en nýrri og sterkari steroidalyfin eins og tri- amcinolone og fluoxprednisolone. Þessi efni hafa þann góða kost að þau blandast vel öðrum efnum, og fyrir utan antibiotica þá fást þau með tjöru, iehthyoli, vioformi, chinioformi og fleiri efnum. Þau fást sem krem og smyrsli, og henta kremin yfirleitt betur á akút og subakút dermatitis en smyrslin betur á þurr hreistrug útbrot. Einnig fást þau í lotionum, sem henta vel á vessandi útbrot og einnig t.d. í hársvörð, sömuleiðis við balanitis. Þessi steroidalyf eru líka til í spray-formi, og er slíkt heppilegt t.d. við meðferð á pruritus vulvae. Systemisk meðferð í sambandi við eczema er fyrst og fremst lyf, sem gefin eru til þess að eyða eða draga úr kláða, og algengustu lyf- in, sem notuð eru til þess eru hin ýmsu antihistaminica. Þau verka með því að blokkera histamin og eru fyrst og fremst gagnleg við ofnæmi, sem lýsir sér með urti- caria og einnig gagnleg við angio- neurotiskt edema. Gildi þeirra hefur ekki verið sannað við aðrar allergiskar reaktionir eða við eczema, sem fylgir kláði, en reynslan virðist sýna að þau hjálpa meira eða minna í mörgum slíkum tilfellum. Fjölmargar teg- undir antihistaminlyf ja eru á markaðnum, og verka þau mjög mismunandi á sjúklinga. Þótt ein tegund verki lítið þá getur önnur verkað ágætlega, og er því sjálf- sagt að reyna nokkrar mismunandi tegundir hjá sama sjúklingnum, til að finna út hvað reynist bezt. Aspírin í stórum skömmtum get- ur reynst vel við kláða og sömu- leiðis ýmis sedatíva, og þarf oft að grípa til þeirra. Vitað er að alls konar taugaspenna hefur slæm áhrif á húðsjúkdóma yfirleitt, og er miklu auðveldara að meðhöndla eczema, sé hægt að draga úr slíkri spennu með lyfjum eða á annan hátt. Sé eczema áberandi inficerað, þá er-t>ft hægt að flýta fyrir bata með því að gefa antibiotica per os í viðbót við útvortis meðferðina og er sjálfsagt að grípa til þess þeg- ar með þarf. Við svæsinn contact dermatitis getur það hjálpað sjúklingnum mikið og stytt vinnutap að mun að gefa stuttan kúr af steroidum per os, byrja t.d. með 30—40 mg af prednisoloni á dag og minnka svo skammtinn á viku til 10 dögum niður í ekki neitt. Það þykir ekki lengur kontraindicerað að gefa steroida þótt um infection í húð- inni sé að ræða og lítið gert úr hættu í sambandi við það, miðað við það, sem var fyrir nokkrum árum síðan. Sömuleiðis verka ACTH innspýtingar oft ágætlega
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.