Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1967, Side 55

Læknaneminn - 01.07.1967, Side 55
LÆKNANEMINN 55 og stundum betur en tilsvarandi magn af prednisoloni. Aðalókostur- inn við að gefa steroida per os er sá, að sjúklingurinn heimtar oft meira af lyfinu en læknirinn vill gefa. Sjúklingurinn finnur fljótt að honum batnar og gerir sér ekki grein fyrir þeirri hættu, sem fylgir því að vera á þessum lyf jum lang- tímum saman, jafnvel þótt læknir- inn hafi skýrt það fyrir honum. Er reyndar algengt, að vilji lækn- irinn ekki endurnýja lyfseðil fyrir cortisoni eða prednisoloni, verði sjúklingurinn sér úti um lyfseðil annars staðar og haldi þannig áfram á lyfinu von úr viti. Það eru dæmi til þess, að sjúklingar hafa verið þannig á steroidum árum saman og stjórnað meðferðinni sjálfir án þess að nokkur ákveðinn læknir fylgdist með lyfjagjöfinni. Til eru á markaðnum langvirk steroidasambönd til innspýtingar, og hefur shk lyf jagjöf þann stóra kost, að sjúklingurinn þarf ekki endilega að vita, hvaða lyf er ver- ið að gefa honum. Eitt slíkt lyf er Depo-Medrol, sem inniheldur 40 mg af methylprednisolone acetate per ml. og fæst oft ágæt verkun með því að gefa sjúklingnum sprautu einu sinni í viku þann tíma, sem útbrotin eru verulega slæm. Annað svipað lyf er Kenalog IM, sem hefur ennþá lengri verk- un eða allt uppí 3 til 4 vikur, en það inniheldur triamciolone. Við mjög króniskt eczema eins og t.d. atópiskan dermatitis (pru- rigo Besnier) er afleitt og allt að því ,,malpraxis“ að gefa sjúklingi steroida per os. Sjúklingnum get- ur að vísu bráðbatnað á nokkrum dögum, en þegar fara á að venja hann af lyfinu þá verða útbrotin oft verri en nokkru sinni fyrr, og þess dæmi að alls ekki hefur tek- izt að taka sjúklinginn af lyfjun- um aftur. Prednisolone og skyld lyf á að mínu áliti aðeins að nota við þær tegundir af eczema, sem batna af sjálfu sér, það er að segja nota lyfin til þess að flýta fyrir bata og stytta þann tíma, sem sjúklingurinn er frá vinnu, og er slík notkun þessara lyfja að heita má algerlega hættulaus. Það er óþarfi að fara hér útí þær hætt- ur, sem samfara eru langvarandi cortisone notkun, svo sem blóð- þrýstingshækkun, magasár, osteo- porosis, afmyndun á andliti, striae distensae o.fl., en rétt er að rifja þetta upp í huganum áður en farið er útí það að gefa stero- ida per os við krónískan húðsjúk- dóm. Hér hefur verið minnst á að- eins fá atriði í sambandi við eczema, þennan algenga húðkvilla, sem mörgum gerir lífið Ieitt. Ég vil að endingu minna á, að það get- ur sparað sjúklingnum margra mánaða óþægindi og mikið vinnu- tap, takist lækninum að finna or- sök útbrotanna fljótlega eftir að sjúklingurinn leitar til hans, en skilyrði þess að finna orsökina er, að læknirinn gefi sér nægan tíma til að taka ítarlega sjúkrasögu af sjúklingnum. Sæmimdur Kjartansson.

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.