Læknaneminn - 01.07.1967, Blaðsíða 59
LÆKNANEMINN
59
ferð á shocki, því menn skilja
ekki enn til hlítar það, sem á bak
við liggur og er meðferð því nokk-
uð misjöfn. Þýðingarmest er að
reyna að varna því að sjúklingur
fari í shock og að koma í veg fyrir
orsökina — þ. e. að stöða blæð-
ingar og bæta upp blóðtap. Áríð-
andi er að öndun sé óhindruð.
Helztu atriði í meðferð yrðu:
a) Hækka undir fótum sjúklings
(nema um höfuðáverka sé að
ræða).
c) Halda öndun óhindraðri og
gefa súrefni ef cyanosis er til
staðar.
c) Halda eðlilegum hita á sjúkl-
ingi. Ef sjúklingur er hitaður
um of verður perifer æðaút-
víkkun.
d) Draga úr sársauka og vanlíð-
an með því að gefa morfín í
æð, en það er óæskilegt að
gefa það undir húð, því sé
blóðrásin léleg absorberast
það illa, en getur valdið of
stórum skammti, þegar blóð-
rásin batnar. Einnig er varað
við að gefa morfin sjúklingum,
sem hafa öndunarerfiðleika eða
höfuðáverka. 5—10 mg i. v. er
talinn hæfilegur skammtur.
Nú er einnig farið að gefa
chlorpromazine í stað morfins
og er það talið hafa góð áhrif
á blóðrásina.
e) Parenteral vökvagjöf; við
blóðtapi er bezt að gefa heil-
blóð, annars plasma eða
plasmaexpander þangað til
hægt er að fá blóð. Ef með
þarf er óhætt að gefa blóðið
hratt í æð.
Vasopressorlyf hafa vafasama
þýðingu og í sumum tilfellum eru
þau skaðleg, því þau hækka blóð-
þrýstinginn á kostnað blóð-
streymis um vefina en markmið
meðferðarinnar er einmitt að
bæta blóðstreymið í vefjunum. I
bráðri og svæsinni hypotensio
vegna blæðinga geta adrenerg
lyf þó bætt blóðrásina til hjarta
og heila, en það veitir aðeins
stundargrið, því við það eykst
einnig stöðnun og acidosis í öðrum
vefjum. Nú nýlega hafa menn far-
ið að gefa natrium bicarbonat til
að virka á móti þessari acidosis.
Ennfremur lítur út fyrir að vaso-
pressorar verði lagðir niður en
vasodilatorar teknir upp í stað-
inn.
Að lokum nokkur orð um spelk-
ur og flutning.
Spelkur eru merkir hlutir, sem
rétt er að muna eftir og virða þó
stundum séu þær úr litlu efni. Það
er sagt að það eigi aldrei að flytja
sjúkling með brotinn lim fyrr en
búið er að spelka hann. Spelkur er
oftast hægt að búa til, aðalatriðið
er að þær geri liminn óhreyfan-
legan. Þægilegastar eru spelkurn-
ar frá 3M, sem eru tvöfaldir plast-
pokar, sem smeygt er upp á lim-
inn og síðan blásið upp. Ef grun-
ur er um brotinn hrygg er bezt að
flytja sjúklinginn á hörðum fleti,
svo sem á hurðarbaki. Hálsbrotna
sjúklinga þarf að fara sérstaklega
varlega með, bezt er að flytja þá á
hörðum fleti og skorða höfuðið
vel af. I öllum slysum er mikilvægt
að flytja sjúkling eins varlega og
nettilega og unnt er. Það er sjald-
an ástæða til að aka með feikna
hraða og látum, það hefir aðeins í
för með sér aukin óþægindi og
jafnvel meiri áverka fyrir sjúkl-
inginn, auk þess sem það skapar
hættu og veldur stundum slysum
á vegfarendum.