Læknaneminn - 01.07.1967, Page 65
LÆKNANEMINN
65
Gunnsteinn Gunnarsson
Hlöður Bjarnason
Kristján Eyjólfsson
Magnús Skúlason
Þórður Harðarson
Þorvarður Brynjólfsson
Þetta tölublað Læknanemans er hið síðasta þeirrar ritstjórnar,
sem undanfarna þrjá ársfjórðunga hefur um blaðið séð. Eðlilegt er
að athuga nú, hversu hefur af reitt. Þegar ritstjórnin hóf starf sitt,
gerði hún ýmsar áætlanir; stóðust sumar, og fleiri þó ekki. Áherzla
skyldi lögð á umræður um tvö mál, þar sem mest þótti við liggja,
skipan heilbrigðisþjónustunnar í landinu og kennsluskipan í Lækna-
deild Háskólans. Torvelt er að dæma eigin verk. Ritstjórninni er ljóst,
að meir mátti gera. Sumt annað skipaðist betur vonum. Hinar dánu
hugmyndir þarf ekki allar að gráta.
I ritstjórninni áttu sæti, auk undirritaðs, Viðar Hjartarson og
Magnús Jóhannsson. Samvinnan var góð; heyrðist aldrei styggðarorð.
Hafi þeir þakkir. Þeim, sem skrifað hafa í blaðið, ber þakkir; einnig
Steindórsprenti fyrir gott samstarf; sem öðrum, er vel hafa unnið.
Ný ritstjórn tekur við Læknanemanum. Fylgi heill starfi hennar.
Válgaröur Egilsson.