Læknaneminn - 01.12.1968, Qupperneq 44
LÆKNANEMINN
U
Ummr Pétursdóttir, stud. med.:
/ stúdentaskiptum
í Finnlandi
Frá þeim tíma, er Félag læknanema gerðist aðili að alþjóðasam-
tökum, IFMSA, eru liðin ellefu ár. Það er ekkert efamál, að sú aðild
er okkur nauðsynleg, jafnvel öðrum fremur, vegna fámennis og fjar-
lægðar frá öðrum þjóðum.
Ég flaug til Finnlands á síðast liðnu hausti til mánaðardvalar í
Helsinki. Ákvörðunarstaður var Kvinnoklinikken, Mejlans sjukhus
(Meilahden sairaala), sem er aðalháskólasjúkrahúsið í Helsinki. Á
sjúkrahúslóðinni standa margar byggingar. Langhæst ber fimmtán
hæða ,,Hilton“, sem, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, virðist
standa undir gælunafninu. Þetta er afar glæsileg bygging og fullkomin
að læknisfræðilegum útbúnaði. Kennslurými er þar blátt áfram stór-
kostlegt. Má nefna til dæmis einn stærsta fyrirlestrarsalinn, þ.e. fyrir
handlæknisfræði. Hann rúmaði nokkur hundruð manns í uppstoppuð-
um sætum. Við ræðustól fyrirlesarans var stórt takkaborð, og þaðan
var stjórnað kennslutækjum, svo sem litsjónvarpi frá skurðstofum,
skugga- og kvikmyndavélum og ljós dempuð eftir þörfum. Sjónvörp,
sem ég ímyndaði mér vera hámark þæginda, voru í öllum kennslu-
stofum. I sérhverri grein, virtist aðstaða vera eins og bezt var á
kosið. Sérstaklega eftirtektarvert var að skoða tækjabúnað, sem ein-
göngu var ætlaður læknanemum á kursus í bacteriologiu, pathologiu
og hygienu, þar sem hvert fag hefur sitt eigið kennslulaboratorium. Á
Mejlans sjúkrahúsinu fer fram kliniskur hluti námsins, en allt læknis-
námið tekur sex og hálft ár, en þar er ekki tímatakmörkun, eins og
hér. Því er háttað líkt og í Svíþjóð, þ.e. eitt fag er tekið fyrir í einu
með fyrirlestrum og verklegri kennslu samtímis. Að enduðum kursus
er tekið lokapróf í faginu. Innganga í læknadeild er takmörkuð. Farið
er eftir stúdentsprófum og árangri af tveggja mánaða kursus, sem
þeir sækja, er hyggja á læknisnám.
Kennslumisseri var hafið í september, þegar ég dvaldi á fæðingar-
og kvensjúkdómadeild. Kvinnoklinikken er staðsett í einni af elztu
byggingunum á Mejlans. Hún er stór og þar er mikið um að vera,
sem má að nokkru marka af fjölda fæðinga á ári, sem nemur um það
bil sjö þúsundum. Þama eru læknanemar á næstsíðasta ári í átta vik-
ur og búa helming tímans í sjúkrahúsinu, eða réttara sagt í lítilli
viðbyggingu, sem hlotið hefur nafnið Fomix. Þar var mér úthlutað
herbergi. í Fornix ríkti skemmtilegur andi, en ekki alltaf að skapi
hjúkrunarliðsins við hliðina, sérstaklega ekki um helgar, þegar konur