Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1973, Síða 10

Læknaneminn - 01.07.1973, Síða 10
HV3ERNIG LÖGGJÖF GETUH VERIÐ Löggjöf um fóstureyðingar getur verið á fjóra vegu: a) Allar fóslureyðingar bannaðar. b) Ákvörðun í höndum konunnar, lög kveði á um framkvæmd. c) Engin lög um þetta efni. d) Ákvörðun í höndum þjóðfélagsins, lög kveði á urn framkvæmd. ci) Að barma allar fóstureyðingar: Það mundu mjög fáir Islendingar vilja. Þetta þýddi t. d. að kona, sem hefði verið nauðgað, fengi ekki fósturevðingu, og ekki heldur kona, sem örugglega gengi rneð van- skapað barn. b) Að konan ákveði. Helzta mótbára gegn þessu er sú, að kcnur dragi oft rangar ályktanir í hila augnabliksins. Við þessu er það eitt svar, að ef kon- an getur ekki dregið réttar ályktanir, þá er mjög hæpið, að nokkur annar aðili í þjóðfélaginu geti það. Allavega er betra, að fólk súpi seyðið af vitleys- um sjálfs sín, en vitleysum annarra. c) Þeir, sem engin lög vilja hafa um fóstureyð- ingar, óttast fyrst og fremst, að öll lög muni leiða til valdbeitingar. Viðhorf þeirra kemur e. t. v. bezt fram í slagcrði bandarískra rauðsokka: „My uterus is not a State Property.“ d) Að þjcðfélagið ákveði: Þetta er helzt réttlætt með eftirfarandi fjórum röksemdum: 1. Yfirvöld séu málsvari þess fólks, sem tekli sig verða tilfinnanlega sært af því að vita, að fóstur- eyðingar viðgengjust í þjóðfélaginu. 2. Yfirvöld séu málsvari k:nunnar sjálfrar, sem viti ekki hvað hún er að gera sjálfri sér. 3. Yfirvöld séu málsvari þjóðfélagsins og beri að tryggja, að eðlileg fjölgun verði í landinu. 4. Yfirvöld séu málsvari fóstursins. Rœðum nú hverja röksemd fyrir sig 1) Fóstureyðingar viðgangast í þjóðfélaginu og vandséð er, hvers vegna fólk æíti að vera rrieira sært tilfinningalega vegna fóstureyðingar, sem ákveðin er af móðurinni einni, en af fóstureyðingu, sem ákveðin er af yfirvöldum eftir umsókn móður. Þeir sem lelja, að þarna cé líf deyít á ónógum fcrsendum eða vegna minniháttar erfiðleika, sem hægí væri að lagfæra, ættu frekar að reyna að sannfæra þungaðar stúlkur um réitmæli skoðana sinna í opnum umræðum en að láta beica þær valdboði. eins læknis er votti, að ekkert mæli gegn aðgerð, skulu skrifuð á sérstakt eyðublað og leggja með journal sjúklings. Að aðgerð lok- inni skal senda heilbrigðisyfir- völdum greinargerð um fram- kvæmd liennar á þar til gerðum eyðublöðum. Heilbrigðismálaráð- herra skipar 3 rnanna nefnd, er úrskurði unr ágreiningsatriði og synjanir. Rejsiákvœði Konunni skal ekki refsað fyrir ólöglega fóstureyðingu. Onnur á- kvæði svipuð. tveggja lækna um nauðsyn að- gerðarinnar og sé annar þeirra yf- irlæknir sjúkrahússins, þar sem aðgerð er fyrirhuguð. Skrifist í tvíriti og fari annað iil landlæknis en hitt leggist í journal sjúklings. Að aðgerð lckinni skal senda landlækni greinargerð um fram- kvæmd hennar. Rejsiákvœði Refsiákvæði alm. hegningarlaga. 6 LÆICNANEMINN

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.