Læknaneminn - 01.07.1973, Page 43
fyrir, að sýkingarhlulfall sé hvergi hærra í þeim
landshluta en þar. Venjulega er þetta mannflesta hér-
að hvers landshluta. Þessi héruð eru: Reykjavík,
Stykkishólmsh., Isafjarðarh., Akureyrarh., Seyðis-
fjarSarh., Víkurh. og Selfosshérað. Ennfremur eru
svo nokkur héruð, sem af einhverjum ástæðum þóltu
forvitnileg. Þau eiga það sameiginlegt, að skráð
voru færri en 20 tilfelli í hverju í seinasta faraldri,
þ- e. rauðir hundar virðast ekki hafa gengið að marki
• þessunr héruðum þá, og sumum lengur. Með þessu
selti að finnast lægsta hlulfall af ónæmu fólki. Þessi
héruð eru: Kleppjárnsreykjah. og Reykhólah. (aldrei
nema örfá lilfelli skráðj, Vopnafjarðarh. (skráður
faraldur ’25-’26, annars aðeins fáeinir sjúkl. j, Hafn-
arh. (slapp við seinasta faraldur) og Kirkjubæjarh.
(aðeins skráður faraldur ’30-’31). Ennfremur var
farið í nokkrar sveitir Þingeyjarsýslu, sem líklegt
þótti, að svipaði til jressara héraða, en varð ekki ráð-
ið af skýrslum, þar sem þær lilheyra Húsavíkurhér-
aði, og Húsavíkurkaupstaður á sjálfsagt bróður-
partinn af sjúkl. skráðum þar. Vitað var, að misl-
ingar sniðgengu lengi Þingeyjarsýslurnar (Margrét
Guðnadóttir, próf.j.
Þessi 13 héruð fullnægja flest því skilyrði að hafa
verið á skrá í öllurn rauðu-hunda-faröldrum, a. m. k.
annað árið. Þó vantar upplýsingar frá Isafjarðarh.
30—’31, Vopnafjarðarh. ’40—’41 og ’54—’55 og
Kirkjubæjarh. ’40—’41. Meiri kröfur var því miður
ekki unnt að gera til heilbrigðisskýrslna. Ennfremur
þurftu þessi héruð að hafa verið óbreytt (að mestu
alla vega) á tímabilinu frá 1925 (Selfosshérað var
hluli af stærra héraði fyrir 1947). Með þessu móti
er vitað nokkurn veginn um feril rauðra hunda í
þessum héruðum og tækifæri til samanburðar við
niðurstöður könnunarinnar.
Um stærð úrtakshópa er þetta að segja: Alls stað-
ar nema í Reykjavík og á Akureyri voru teknar allar,
sem lil náðist úr téðum aldursflokkum. Fyrir Reykja-
vík og Akureyri var unnið úrtak í Skýrsluvélum rík-
isins, en þar er íbúum raðað eftir stafrófsröð gatna.
Teknar voru 50 úr hverjum árgangi (eða allar, ef
þær voru færri). Endanlega náðist til ca. 30 (= ca.
4% af árgangi) úr yngri aldursfl. í Reykjavík, en ca.
18 (= ca. 4% af árgangi) úr þeim eldri - f. ’39 og
eldri. Á Akureyri náðist til ca. 12,5% af elzta ár-
ganginum og 15-35% úr öðrum.
3.1. Heimtur
Alls náðist til 1536 kvenna. Þar af fékkst blóðsýni
úr 1464 (af þeim falla aftur 6 úr við skiptingu milli
staða). Skipling eftir aldursflokkum og stöðum er
sýnd á 3. og 4. töflu.
Aldur arum 1972 5.7 | 9-11 | 13-16 ( 18-20 | 21-24 ) 25-27 | 29-31 : 32-37 | 38^1 J 42M4 \ 4W6 1 47-49 J Alls
Fjöldi 139 i I7C 206 153 ' 121 j 08 ! 126 I 110 99 1 73 | 59 | 42 ; 1464
3. tafla.
Staður Reykja- vík Kleppj. - reykjah Stykkis- j Reykh. -j ísalj -lAkur- hólmsh | hérað \ hérað eyri Þing- i Vopna-j Scyðis- eyjars. Ij. h. íj. h. l!afnar-|Kirkju-| Vikur-ISeJí. -1 Alls hérafl jbæjarh. hérað j hérað1
Fjöldi 311 53 102 | 42 j 147 200 115 1 62 1 85 90 1 53 ' 65 128 11453
4. tafla
3.2. Mótefnamteling
Til ákvörðunar á ónæmisástandi voru mæld Hl-
mótefni (Tiemagglutinationsinhiberandi mótefni).
Sýnt hefur verið fram á, að þau gefa áreiðanlegar
upplýsingar um bæði gamlar og nýjar sýkingar.8
Nctuð var sú mælingaraðferð, sem viðhöfð er á
veirurannsóknastofnun háskólans í Gautaborg. Þetla
er mikrotækni, sem byggist á aðferð Halonens,0 en
er nokkuð breytt. Serumið er fyrst hreinsað með
kaolini. Við sjálfa mælinguna eru notuð dúfnablóð-
korn í fosfatbuffer pH 7,4. Anligen var fengið frá
Flow,Labcratories í títer 1/64. 1 hverri mælingaröð
voru höfð með kontrólserum frá Flow og Gautaborg,
með háan og Iágan líler og neikvæð.
Við hverl hækkandi títerstig er þynnt til helminga,
þ. e. títergildin eru 10, 20, 40, . . . 640 (dæmi: títer
40 táknar, að serumið hafi gefið ákveðna svörun í
þynningunni 1/40, en enga í þeirri næstu, 1/80).
Jákvæðar voru taldar þær konur, sem höfðu líter
hærri en 20. Gildið 20 var álitið annað hvort fölsk
jákvæð svörun eða það lágt, að það veitti enga vörn
gegn endursýkingu. Ef títer reyndist 20 var mæling-
in endurtekin.
3.3. Samband srörunarhlutfalls oy
títers viS aldursflokka
4. mynd sýnir blutfall einstaklinga, sem reyndusl
jákvæðir í mótefnamælingu (kallað hér eftir svörun-
arhlutfall) eftir alclursflokkum.
F-gildi* fyrir svörun eftir aldursflokkum reiknast
* Ekki verður farið út í nánari útskýringu á tölfræðilegum
aðferðum. Tilganguiinn með beitingu þeirra er að finna, að
live miklu leyti breytileiki getur stafað eingöngu af tilviljun.
Frítölur eru háðar fjölda einstakl. og flokka og vísa á staðinn
í töflu yfir F-gildi, sem stækkar eftir því, sem raunverulegur
breytileiki milli flokka er meiri.
læknaneminn
33