Ferðir - 01.05.1990, Page 31
F R H Ð I R
31
Skýrsla ferðanefndar
Ferðanefnd starfaði með hefðbundnum hætti sl. ár. Nefndin kom fyrst saman
29. apríl. Hún var þannig skipuð:
Ragnhildur Bragadóttir formaður, Ásta Ólsen, Haukurívarsson, Jón Sig-
urðsson, Karl Bragason, Sigurður Jónsson, Vildís Jónsdóttir.
Myndakvöld var haldið 19. maí og voru þar kynntar ferðir sumarsins.
Nefndarmenn hittust flest mánudagskvöld kl. 18 í húsakynnum félagsins.
Eins og endranær fór mikil vinna í undirbúning hverrar ferðar og aðalvanda-
málið eins og undanfarin ár að útvega fararstjóra.
Guðbjörg Sigurðardóttir var á skrifstofunni og var mikil og góð samvinna
ferðanefndar og hennar.
Ferðaáætlun bauð upp á 26 ferðir, farnar voru 13 ferðir af áætlun og ein
auka gönguferð á íþróttadegi fjölskyldunnar.
Þátttakendur voru 225. Flestir í Jónsmessuferðinni 38 enn fæstir í göngu-
ferð á Vatnahjalla 8. Mikið strik setti í reikninginn hvað voraði seint og var
lítið sumar hjá okkur. Margar ferðir féllu niður vegna veðurs eða ófærðar en
ekki vegna þátttökuleysis. En svo ég komi inn á hið stóra vandamál ferða-
nefndar sem er að fá fararstjóra, óska ég eftir að félagar ígrundi þetta mál og
komi með tillögur, ef þeir hafa, til okkar.
Það kemur æ oftar fyrir að fella þarf niður ferð vegna þess að fararstjóri
fékkst ekki. Ég skil líka þá mörgu sem treysta sér ekki sem fararstjórar því
við gerum miklar kröfur oft til þekkingar þeirra, og e.t.v. ætti ferðanefnd að
gera meira af því að fá leiðsögumenn inn í ferðirnar ef einhver sem ekki
treysti sér sem leiðsögumaður en vill hafa forystu á annan hátt. En við verð-
uni að finna einhverja lausn á þessum vanda.
Skýrsla Bræðrafellsnefndar 1989
Engin vinnuferð í skálann á árinu og ekki var hcldur átt við aö stika ökuleið
á bak við Herðubreið. Við eigum um 200 stikur serrf við ætlum til að merkja
gönguleiðina milli Dreka og Bræðrafells.
í maíbyrjun gisti nefndarmaður í skálanum og var þá allt i mjög góðu
standi. Sama untsögn var hjá fólki er gisti síðla sumars. Þó nokkur umferð
um svæði í sumar er leið.
I Bræðrafellsnefnd 1989: Jakob Kárason, Magnús Guðmundsson, Jóhanna
Steinmarsdóttir og Svcrrir Þórisson.
31. 12. 1989
F. h. B ræðrafelIsnefndar:
Jakob Kárason.