Ferðir - 01.05.1990, Qupperneq 32
32
F E R Ð I R
Skýrsla Lambanefndar 1989
Engin vinnuferð í skálann á árinu, ncma hvað Þórvcig gaf okkur ver utanum
kojudýnurnar og setti hún og Asta Olsen verin utanum í vor.
5. des. var reynt að ganga i skálann, en snúið við vegna hvassviðris. 12.
des. var aftur farið og var þá gist. Skálinn var í mjög þokkalc'gu standi, þrifa-
lcgur en lítil olía var á tanknum. Kabyssan var í lagi, þó þarf að taka hana í
bæinn til endurbótar í vetur. Ekkcrt var átt við göngubrú þar fremra. Brúin
á Lambá cr nokkuð biluð. Syðra hafið cr í lagi, cn nyrðra cr brotið niður í
miðju og þyrfti endurnýjunar við.
Á vetrum hafa margir vélsleða- og skíðamenn viðkomu í Lamba og fer
vetrarferðum á Glerárdal fjölgandi. Nokkrir konia í skálann í sumar.
í Lambanefnd 1989: Jakob Kárason, Bragi Kristinsson, Gunnar Helgason
og Friðjón Halldórsson.
31. 12. 1989
F. h. Lambanefndar:
Jakob Kárason.
Skýrsla Þorsteinsskála og Strýtunefndar 1989
Framkvæmdir í ár voru eftirfarandi:
Keyptir voru tveir Lödu-jeppar snemma vors, annar til landvörslu í Herðu-
breiðarlindum og hinn í Dreka og Öskju. þeir voru lagfærðir nokkuð vegna
aldurs og fyrri starfa, áður en þeir voru brúklegir sent fjallabílar. Settar voru
talstöðvar sem F.F. A. og Náttúruverndarráð áttu í þá og reyndust þær frekar
illa þrátt fyrir að þær hefðu verið stilltar og yfirfarnar af virtu rafeindafyrir-
tæki hér í bæ.
Farið var í opnunarferð í Lindir föstudaginn 23. júní kl. níu að kvöldi með
útbúnað, vistir, verkfæri. I förinni voru 12 fullorðnir og 3 börn. Farið var á
stórum sendlabíl, A-5008, sem reyndist í alla staði hið traustasta farartæki.
Einnig var farið með aðra Löduna sem átti að þjóna Kára skálaverði, sem var
mættur nokkrum dögum fyrr og hafði farið á eigin bíl uppeftir. Bíll Kára var
nefndur Gorbachov og var búinn farsíma sem bjargaði málum þegar talstöðin
í Lödunni gaf upp öndina.
Á laugardagsmorgun var hafist handa við lagningu vatnsveitu, nýtt reykrör