Ferðir


Ferðir - 01.05.1990, Blaðsíða 33

Ferðir - 01.05.1990, Blaðsíða 33
F E R Ð I R 33 Vinnuferð t Herðubreiðulindir vorið 1989. (Ljósm.: Ólöf Tryggvadóttir.) sctt á Þorsteinsskála og hann gerður hreinn í hólf og gólf. Einnig var þrifið í Strýtu og snyrtihúsi. I Lindunt voru staddir tveir erlendir ferðamenn, göngulúnir og sárfættir eftir að hafa gengið úr Mývatnssveit. Hjálpuðu þcir okkur scm best gátu við allar framkvæmdir og fengu að launum bílfar til byggða á sunnudaginn. Haustferð var farin 1. september. Gengið var frá öllu fyrir veturinn, vatns- vcita tekin upp, settir hlerar fyrir glugga, settur frostlögur í klósettin, rotþró- in tæmd o.fl. o.fl. Ásgeir Bragason hélt ferðafélögum sínum veislu af mikilli rausn um kvöldið I. sept. og fram á nótt í tilefni afmælis síns. Öllum aðstandendum þessara vinnuferða og öðrum sem lögðu okkur lið eru færðar bestu þakkir fyrir hjálpina. Einnig vil ég þakka Jóni Árna og Gísla fyrir þjónustuna í sumar. Fyrir hönd nefndarinnar. Haukur ívarsson.

x

Ferðir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.