Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2023, Side 8
8 | | 21. desember 2023
Björk Sigurgeirsdóttir er fædd
og uppalin í Vestmannaeyjum.
Foreldrar hennar eru Bergþóra
Þórhallsdóttir og Sigurgeir
Sævaldsson. Árið 2005 flutti
hún til Akureyrar en flutti
aftur heim til Eyja árið 2018
ásamt kærasta sínum Magn-
úsi Heiðdal. Saman eiga þau
Karítas Heiðdal sem er eins og
hálfs árs.
Vinir og fjölskylda njóta góðs af
Áhugi Bjarkar á kökubakstri byrj-
aði snemma. Þegar hún var lítil
fylgdist hún alltaf með mömmu
sinni baka og hafði gaman af
því að fá að hjálpa til. „Yfirleitt
bakaði hún einhvers konar fígúrur
eða þemakökur í afmælum okkar
systra, til dæmis kanínu og gítar
með lakkrísreimum. Sjálf var ég
dugleg að baka þegar ég hafði
aldur til. Uppskriftabókin hennar
mömmu var stútfull af góðum
uppskriftum, þá helst frá ömmum
mínum og þykir mér afar vænt um
að hafa skrifað þær niður og eiga
þær sjálf í dag.“
Fyrstu sykurmassakökuna gerði
Björk í grunnskóla með aðstoð
systur sinnar. Hana langaði til
þess að gera Angry Birds köku
fyrir afmælið sitt. Síðan þá hefur
hún varla hætt að baka og njóta
vinir og fjölskylda góðs af. „Ég
bakaði fyrir öll bekkjarkvöld, af-
mæli hjá vinum að þeirra óskum,
fyrir skírnir í fjölskyldunni og
ekki má gleyma afmælum.“
Alltaf gaman að prófa
eitthvað nýtt
Þegar Björk byrjaði að baka var
tæknin ekki eins góð og aðgengi
að kennsluefni og hugmyndum
takmarkaðra en það er í dag. „Í
upphafi gerði ég allt sjálf, fékk
hugmynd og reyndi að útbúa
eins vel og ég gat. Ég staflaði
kökum saman, en skyldi ekki af
hverju hún endaði sem Skakki
turninn í Písa. Hún tók um 10 til
12 klukkustundir og ég var aldrei
100% sátt en reyndi mitt besta að
laga og bæta.
Mér finnst alltaf gaman að gera
eitthvað sem ég hef ekki gert áður.
Ég fékk fyrirspurn frá litla frænda
mínum um geimköku á dögunum
og það var mjög skemmtilegt ver-
kefni þar sem fékk að prófa mig
áfram með allskonar hráefni, bjó
til dæmis til plánetur úr bræddu
súkkulaði.“
Ætlar að læra að baka sörur
Desembermánuður hefur verið að-
eins annasamari en aðrir mánuðir
og mikið er um afmæli. Á jólun-
um sjálfum færir Björk sig hins
vegar meira yfir í smákökubakstur
og kósýheit með fjölskyldunni.
„Markmið mitt þessi jólin eru að
læra að baka sörur. Annars þykir
mér afar þægilegt að notast við
tilbúið smákökudeig.“
Segir hún ótrúlega gaman að
sjá hversu langt hún er komin og
hvernig æfingin skapar meistar-
ann. „Það er gaman að sjá myndir
af fyrstu kökunum og ef ég geri
eins köku í dag. Mér fannst fyrstu
kökurnar sem ég gerði geggjaðar,
en hlæ af þeim ef ég sé mynd af
þeim í dag.“
DÍANA ÓLAFSDÓTTIR
diana@eyjafrett ir. is
Kökugerðarkonan og leiðsögumaðurinn Björk:
Plánetur úr bræddu súkkulaði
Björk, Karítas og Magnús að njóta á Spáni.
Áhugasamir geta fylgst með Björk á
instragram.com/bokum_koku.
Plánetu kaka úr bræddu súkkulaði.
Grinch afmæliskaka sem Björk gerði
fyrir vin í desember.
Stofnaði fyrir-
tækið The
Island Guide
Björk er menntaður leiðsögu-
maður og hún stofnaði leið-
sögu fyrirtækið „The Island
Guide“ snemma á síðasta ári.
Þá var hún í fæðingarorlofi og
var að litast um eftir atvinnu,
en aldrei fann hún neitt sem
hentaði vel með eina eins
árs. „Ég hafði áður unnið
hjá Ribsafari á sumrin frá
árinu 2019. Fyrir það var ég
leiðsögumaður á Seyðisfirði
og í nágrenni. Ég ákvað því
að stökkva í djúpu laugina og
prófa að byrja að bjóða upp á
gönguferðir upp á Eldfell og
lundaskoðunarferðir. Ég býð
einnig upp á einkaferðir sem
hentar fyrir minni hópa sem
vill eyða hálfum eða heilum
degi í að skoða og sjá hvað
eyjan okkar hefur upp á að
bjóða.“
The Island Guide býður
ferðamönnum, innlendum sem
erlendum upp á skipulagðar
gönguferðir um Heimaey
tengdar náttúru, sögu og
menningu eyjarinnar með
faglegri leiðsögn frá heima-
manni. Ferðirnar eru glæddar
lífi og viðskiptavinir upplifa
í senn fróðleik, skemmtun
og einstaka náttúru eyjanna.
Á vefsíðu The Island Guide
(theislandguide.is) finnur þú
allar nánari upplýsingar um
gönguferðirnar.