Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2023, Page 10
10 | | 21. desember 2023
Ladies Circle (LC) eru alþjóðleg
góðgerðar- og vináttusamtök
með tæplega 1100 klúbba
starfandi á tæplega 140 svæð-
um um allan heim og eru fleiri
en 11.000 virkar klúbbkonur
í samtökunum í dag. Í Ladies
Circle fá konur tækifæri til að
efla sjálfstæði sitt, auka víð-
sýni og umburðarlyndi og eiga
frábærar stundir með öðrum
konum.
Sandra Sif Sigvardsdóttir er
formaður LC í Vestmannaeyjum.
Verkefni hennar er að setja upp
fundi fyrir starfsárið og halda utan
um formlegheitin, sem og að sitja
fundi formanna og varaformanna
með landsforseta. Einnig er hún
skyldug að sitja landsfund og full-
trúarráðsfund hennar formannsár
með varaformanni klúbbsins.
„Annað tengt starfinu er unnið í
sameiningu allra klúbbskvenna
sem er svo dýrmætt, það að
klúbburinn stendur ekki og fellur
með formanni heldur erum við
allar í þessu saman og vinnum
verkin þannig.“
Frábær og fjölbreyttur hópur
Sandra segir að hópurinn í Eyjum
sé eins fjölbreyttur og hann er
frábær. Ladies Circle er fyrir
konur á aldrinum 18 til 45 ára.
Aðild fá konur sem bornar eru
upp af núverandi eða fyrrverandi
félaga samtakanna. Einnig getur
kona sent inn ósk um inngöngu
í klúbbinn og er þá borin tillaga
um viðkomandi á fundi næst
þegar klúbburinn hyggst fjölga.
Samtökin eru opin öllum konum
sem hafa áhuga á að víkka sjón-
deildarhringinn og kynnast öðrum
konum.
Fyrst og fremst eru samtökin
góðgerðarsamtök en í heildina
eru þau miklu meira en það. „Við
leggjum okkar af mörkum bæði
í innlendum sem og erlendum
góðgerðarmálum. Erum þá í
samvinnu með öllum klúbbum
landsins sem og klúbbum um
allan heim. En þrátt fyrir að vera
góðgerðarfélag í grunninn er
þetta líka bara eins og einn stór
vinahópur og hef ég persónulega
eignast alveg einstaklega góðar
vinkonur sem ég hefði aldrei
kynnst hefði það ekki verið fyrir
þessi samtök og verð ævinlega
þakklát fyrir bæði samtökin sem
og mínar konur í samtökunum.“
Góðverk í krafti fjöldans
Alheimssamtökin Ladies Circle
voru stofnuð í Englandi árið 1936,
árið 1988 var Ladies Circle Ísland
(LCÍ) stofnað á Akureyri. Voru
í framhaldi stofnaðir 2 klúbbar
í Reykjavík árið 1990 og 1994,
þá var fyrsta
Landsstjórn LCÍ
mynduð. Á fyrstu
10 árunum voru
stofnaðir 10
klúbbar víðsvegar
um landið og
eru klúbbarnir
með númer sem
skilgreinir sig
frá öðrum og er
númerið gefið í
þeirri röð sem
að klúburinn var
stofnaður. „Við í
Vestmannaeyjum
erum klúbbur númer 11 og hefur
verið starfandi síðan árið 2009. Í
klúbbnum okkar erum við 17 en
það eru 310 konur í landssamtök-
unum sem eru um allt land.
Ladies Circle er partur af
Round Table fjölskyldunni sem
samanstendur af Round Table
International, Old Tablers, Ladies
Circle International og Agora og
vinnum við náið með þessum
samtökum hér á Íslandi. Það er
alltaf verið að efla samstarfið
okkar á milli og er t.a.m. Round
Table klúbbur í Eyjum sem við
erum í góðu sambandi við sem og
aðra RoundTable klúbba á Íslandi.
Ladies Circle eru mjög öflug sam-
tök en það er ótrúlegt og ómet-
anlegt hvað þessi alheimssamtök
geta gert í krafti fjöldans.“
Jólin tími til að gleðja
Klúbburinn hvetur klúbbkonur
sínar að taka þátt í góðgerðarver-
kefni bókasafnsins og foreldra-
morgna og gefa jólagjöf undir tréð
í Einarsstofu. Einnig voru klúbb-
konur hvattar til að kaupa Lífgjöf
í Kubuneh í stað
pakkaskipta inn-
an klúbbsins í ár.
„Í fyrra bök-
uðum við Sörur
og seldum fyrir
innlenda góð-
gerðarverkefnið
sem er í gangi
núna hjá LCÍ
og fór það langt
fram úr okkar
væntingum, við
komumst því
miður ekki í það
aftur núna í ár
en það er eitthvað sem við viljum
gera að árlegum viðburði þar sem
allur ágóði færi í góðgerðarmál.
Þetta er allt að komast á skrið aft-
ur eftir covid og stefnum við alltaf
á að gera meira og gefa meira af
okkur“, segir Sandra að lokum.
Efri Röð: Erna Georgsdóttir, Heba Dögg Jónsdóttir, Berglind Sigvardsdóttir, Soffía Marý Másdóttir,
Marsibil Sara Pálmadóttir, Linda Óskarsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir, Heba Rún Þórðardóttir, Sara Björg Ágústsdóttir
og Lísa Margrét Þorvaldsdóttir. Neðri röð: Inga Kristín Pétursdóttir, Sandra Sif Sigvardsdóttir, Bryndís Jónsdóttir og
Sara Dís Hafþórsdóttir.
DÍANA ÓLAFSDÓTTIR
diana@eyjafrett ir. is
Góðgerðarsamtökin Ladies Circle:
Eins og einn stór vinahópur
” Við í Vestmannaeyjum erum
klúbbur númer 11 og hefur verið
starfandi síðan árið 2009. Í
klúbbnum okkar erum við 17 en það
eru 310 konur í landssamtökunum.