Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2023, Blaðsíða 12
Eins og undanfarin ár birta Eyjafrétt-
ir kryptíska jólakrossgátu. Ég held
að fyrsta gátan frá mér hafi komið í
jólablaðinu 2013 og hefur því verið
við lýði í rúman áratug. Ævinlega
hefur nokkur fjöldi svara borist
enda á þetta krossgátuform sér stór-
an hóp aðdáenda, hér í Eyjum sem
og annars staðar.En nú er komið að
leiðarlokum. „All good things come
to an end,“ segir breskt máltæki
eða, allt gott á sér sín endimörk. Og
nú er komið að þeim. Eftir því sem
aldurinn færist yfir, verður þetta við-
fangsefni mun strembnara en áður var
og eftir rúman áratug hef ég ákveðið
að þessi verði sú síðasta frá mér.. En
þetta hefur verið ótrúlega skemmti-
legt viðfangsefni og þeir margir sem
hafa á þessum árum þakkað mér fyrir
þennan þátt í jólagleðinni.
Gátan að þessu sinni er með nokkuð
hefðbundnu sniði. Reyndar eru þrjár
vísbendinganna teknar „ófrjálsri
hendi“ úr krossgátum annarra höf-
unda; vísbendingar sem mér hafa í
áranna rás þótt snjallari en aðrar. Þær
eru 1 lárétt, 43 lárétt og 30 lóðrétt og
vona ég að þau Ásdís og Ævar Örn
fyrirgefi mér verknaðinn.
Ef stöfunum í lituðu reitunum er
raðað rétt saman birtist gamalkunn-
ugt örnefni í Vestmannaeyjum (13),
örnefni sem raunar heyrist orðið
mjög sjaldan þar sem staðurinn hefur
fengið nýtt heiti sem nær allir kann-
ast við.
Réttar lausnir þarf að senda, ásamt
nafni og heimilisfangi á netfangið
sigurge@internet.is fyrir 3. janúar
2024. Og að vanda eru bókaverðlaun
í boði.
Að svo mæltu þakka ég samfylgd-
ina við krossgátuþyrsta Eyjamenn í
rúman áratug og vona að þeim farnist
vel á nýju ári.
Lárétt:
1. Greiðir götu Sigurjóns, Matta
og Kristjáns Óskarssona í
höfuðstaðnum (16)
9. Dys þessa manns er sögð vera
í Sydney enda dró hann nafn
af borginni (3)
11. Hún þótti vælin með dósirnar
og einhvern veginn jók það á
fjandskapinn við hana (13)
12. Fyrr vildi ég slagta sauðfé
í heilan dag en sitja við að
stoppa í hálfónýta sokka (6)
13. Vondar fengu kast þegar þetta
áfall gekk yfir (10)
15. Heit prikin nýttust vel þegar
svardagarnir voru gerðir (12)
16. Miði með heiti gefur helstu
upplýsingar um viðkomandi
(10)
18. Ætla mætti að þetta væru bux-
ur sem menn klæddust forðum
ef þeir fengu sér bjór (9)
19. Lok, lok og læs og ég kýli
þann sem kemur inn (3)
21. Aftur var það okkar lán að
finna þetta tól (3)
23. Í norsku merkir þetta orð slím
í augum en í íslensku yrði það
líklega notað um óhreinindi í
augum eða stírur (9)
28. Það er skrýtið að sjá þá farna
burt með þessum feikna látum
(5)
31. Frá þessari ítölsku á má gjarn-
an heyra óp og öskur (2)
32. Á því herrans ári, Anno Dom-
ini (2)
33. Ég lá kylliflatur fyrst þegar ég
veiddi þennan fisk (2)
34. Þetta spil má nota til að launa
fína spilamennsku (9)
35. Þann lýsisspýjandi fugl má
gjarnan sjá í björgum Vest-
mannaeyja (3)
38. Snarvitlaus bragur? (4)
39. Þetta gljúfur má m.a. finna í
Hvanndölum milli Ólafsfjarðar
og Héðinsfjarðar (8)
40. Úr fórum Hauks kemur sjó-
fugl. Í hópi hans albestu bóka
(10)
41. Þessi baðlaut er líklega höfuð-
vígi íþrótta á Íslandi (11)
42. Fjörugur labbitúr, fjarri jarðar
glaumi (9)
43. Er það smámunasemi ef saur
kemur úr röngu líffæri? (15)
46. Ég ansa nú ekki svona fífli (4)
48. Meinaskart hefur verið notað
í helgum dómi um aldaraðir á
einhvern hátt (10)
49. Þetta púlsróðratæki hefur
einkennt þrældómstímabil (9)
Lóðrétt:
1. Halda mætti að svona partí til
forna hefði verið undirlasgt af
ljótum munnsöfnuði (10)
2. Refsing fyrir lífstíð eða loforð
um góðar framtíðarhorfur?
(10)
3. Þetta ílát tætti Anna Sturlu oft
í sundur meðan hún vann í
öskunni (10)
4. Ég minnist slíkra túra frá
skíðatímanum sem enduðu
með falli (10)
5. Undarlegur skófatnaður. Að-
eins ein skóreim með parinu?
(10)
6. Nei, þetta var einhver annar,
sir. Og sá þekkti einhvern
veginn flug fuglsins (8)
7. Nei, Bersi víkingur var ekki
slavneskur, þótt einhverjir
héldu því fram að hann ætti
frændur þar (5)
8. Hljóðfæraleikur í nútímalegri
mynd (9)
9. Aðdráttarafl, ættað frá
norðurslóðum, ómissandi við
siglingar fyrrum (9)
10. Þessa andalaut er að finna
norður í Eyjafirði (9)
14. Þessi ítalska netverslun er á
góðri leið með að dolera mark-
aðinn í Ceggia og nágrenni (6)
17. Ég verð æf, ef ég má ekki haga
mér eftir eigin vilja (2)
20. Fugl með sál? (3)
22. Getur sá gefið frá sér einhvers
konar stunu, sem dáinn er? Já,
ef mætingin er góð (10)
24. Ekki var talað um nautabökin
sem lostæti, frekar sem fjall-
veg (11)
25. Skrár heita ýmsum nöfnum,
þar á meðal þessu (11)
26. Segja má að glös sanni stund-
um rétta frásögn (9)
27. Þau geta dvalið hér sem komu
að utan. Ekki vantar dásemd-
ina (7)
28. Skott eða grænmeti? Kannski
hvort tveggja (4)
29. Einhvers konar gusur voru lak-
ast metnar þegar kaldur vindur
gekk yfir (11)
30. Fræg viðureign skordýra (11)
36. Harðbýl er heiðin með öll sín
hljóð (2)
37. Það er nú varla hægt að kalla
það hroka, að þau skyldu
skrimta um árabil á þessu koti
(5)
39. Dastolia gæti verið erlenda
heitið á þessu frábæra ofaná-
leggi að vestan (8)
44. Þetta gláp er orðið nóg að
sinni (3)
45. Hvort viltu að ég tali hann
niður hér eða haldi með hann í
land á kænunni? (3)
47. Leir fyrir lítið fé (3)
J Ó L A K R O S S G Á T A E Y J A F R É T T A 2 0 2 3 SIGURGEIR JÓNSSON
sigurge@internet. is