Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2023, Qupperneq 14
14 | | 21. desember 2023
Þeir eru fremur stundvísir,
tjaldarnir sem gert hafa sig heima-
komna í nágrenninu við okkur
í Gvendarhúsi á undanförnum
árum. Í fyrra mættu þeir þann 29.
mars, á afmælisdaginn hennar
Katrínar, en í ár komu þeir degi
fyrr, sennilega til að missa ekki af
afmælisveislunni. Og húsráðendur
í Gvendarhúsi tóku að sjálfsögðu
fagnandi á móti þessum fyrstu
afmælisgestum og dreifðu brauð-
molum út á blett sem voru mót-
teknir með ánægju enda erfið ferð
að baki yfir sjálft Atlantashafið
og hingað í sælunnar reit.
Við sáum fljótlega að hér voru
líklega á ferð sömu hjónin og
voru hjá okkur árið áður, svo
líkir voru taktarnir. Og þegar þau
svo eftir nokkra daga flugu upp
á flugvallarbrúnina til að athuga
með hreiðurstæði, þá fannst okkur
ekki fara milli mála að þetta væru
sömu fuglar enda hreiðurstæðið
hið sama.
En svo tóku við rólegheitadagar.
mér er sagt að tjaldurinn stundi
sitt tilhugalíf á hverju vori eins og
hann hafi aldrei hitt sína útvöldu
fyrr, jafnvel þótt um margra ára
samvistir sé að ræða. Og svo virð-
ist einnig hafa verið að þessu sinni
þótt við sæjum minnst af því.
Mér hefur stundum dottið í hug
hvort lífið hjá okkur mannfólkinu
myndi eitthvað breytast til hins
betra ef við tækjum upp þesssa
siði tjaldsins. En nóg um það.
Næstu dagana sáum við ekki
mikið til þeirra hjóna (eða hjóna-
leysa) þau héldu sig talsvert út
af fyrir sig og fyrir kom að þau
eftirlétu dúfunum alveg það sem
kastað var út á blettinn daglega
sem fuglafóðri. Hafa kannski
flögrað suður í Klauf þar sem
alltaf er nóg æti að finna.
Fiskur í uppáhaldi
Og nú leið nokkur tími þar
sem þau hjón voru ekki mikið
á ferðinni, sáust stöku sinnum
saman eða sitt í hvoru lagi og
ekkert endilega á matmálstímum
heldur undu sér við að plokka upp
ánamaðka og annað góðgæti (sem
er trúlega mun betri undirstöð-
ufæða en brauðmetið). Búin að
velja sér hreiðurstæði og undu hag
sínum hið besta í tilhugalífinu.
Mættu þó stundum um kvöld-
matarleytið og voru svo heppin
að fá afganginn af fiskinum sem
eldaður hafði verið. En fiskmeti er
mikið uppáhald þessara fugla. Og
þó að samneytið við dúfurnar hafi
alla jafna verið gott á matmálstím-
um þegar brauði var hent út, þá
snarbreyttist það ef fiskur var í
boði. Þá voru dúfurnar reknar
brott hið snarasta og þau sátu
yfirleitt ein að því fæði. Dúfurnar,
þeir þolinmóðu og kurteisu fuglar,
gerðu sér hins vegar að góðu að
mæta aðeins seinna og tína í sig
kartöflurnar sem gengið höfðu af.
Og svona liðu vikurnar áfram,
hver af annarri þar til í júníbyrjun.
Þá kom í ljós að tjaldshjónin í
flugvallarkantinum höfðu komið
upp tveimur ungum sem sóru
sig í ætt foreldranna. Og nú tók
heimsóknum þeirra að fjölga.
Reyndar héldu þau ungunum frá
suðurhlutanum af lóðinni þar sem
matargjafirnar voru yfirleitt settar.
Völdu þeim frekar svæðið vestan
við húsið þar sem alla jafna er
skýlla ef eitthvað blæs. Kenndu
þeim að tína ánamaðka og flugu
síðan eftir brauði og öðru æti
handa þeim suður fyrir hús og
færðu þeim. Hafa kannski ekki
treyst ungviðinu fullkomlega til
að kljást við dúfurnar
Íhaldssemi í öndvegi
En þetta sumarið, eins og reyndar
áður, voru fleiri sem vildu komast
í matargjafirnar í Gvendarhúsi
en dúfurnar og þessi tjaldafjöl-
skylda. Í Suðurgarðslandinu hafði
einnig verpt annað tjaldapar og
sömuleiðis komið upp tveimur
ungum. Og þeir fuglar höfðu
komist að því gegnum tíðina
hvenær dagsins var von á mat út
á blett í Gvendarhúsi og annar
fuglinn (líklega karlfuglinn)
flögraði einatt yfir til að ná í bita.
En hann var enginn aufúsugestur
og var samstundis rekinn á braut
með látum. En þessi tjaldur í
Suðurgarði var greinilega bráð-
greindur og sérlega flugfimur því
að hvað eftir annað skaust hann úr
loftinu niður á blettinn á fleygi-
ferð og greip bita í gogginn áður
en nokkur hafði áttað sig á hvað
var að gerast. Flaug svo á braut en
átti til að endurtaka leikinn innan
tíðar. Þetta háttalag féll tjaldinum
í Gvendarhúsi ekki vel í geð en
hann fékk þar engu breytt. Hinn
fuglinn var bara miklu sneggri,
líklega eitthvað yngri, og því lét
hann sig hafa þetta, þó líklega
ekki ánægður.
Þessi hegðun tjaldanna fyrir
ofan hraun hefur stundum orðið
mér umhugsunarefni. Inni í
Herjólfsdal er mikið um tjald á
hverju sumri en þar virðast allir
lifa í sátt og samlyndi, eru þar oft
í hópum tugum saman og virðast
skipta milli sín því brauði sem
vegfarendur færa þeim. Engin
slagsmál eða læti. En hér fyrir
ofan hraun er allt annað í gangi
og sá nágrannakærleikur sem
ríkir milli bæjanna hér, virðist
ekki ná til tjaldanna. Mér virðist
sem tjaldarnir sem sest hafa að í
landi Gvendarhúss, telji sig öðrum
rétthærri og ríki þar eins og óðals-
bændur; enda hef ég áður frá því
greint að forfeður þeirra hafi talið
sig brottrekna af jörðinni þegar
við byggðum Gvendarhús.. Það
hefur líka stundum verið sagt um
íbúa fyrir ofan hraun að þeir séu í
eðli sínu íhaldssamari en aðrir og
kannski á það við um fuglana líka.
Vargurinn rekinn á braut
Og þannig leið þetta sumar, oftast
friðsamt meðal fuglanna en fyrir
kom á varptímanum og meðan
ungarnir voru að komast á legg
að bægja þurfti frá svartbak sem
Sigurgeir Jónsson Tjaldurinn í Gvendarhúsi:
Tveir myndarlegir ungar
komust á legg þetta sumarið
Myndina teiknaði Lóvísa Ingibjörg Jarlsdóttir.