Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2023, Blaðsíða 17
21. desember 2023 | | 17
„Heimaeyjargosið 1973 breytti
öllu í Vestmannaeyjum,“ segir
Arnar Sigurmundsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri. Hann var á
30. aldursári þegar eldgosið hófst
aðfaranótt 23. janúar 1973. Eftir
að hafa komið fjölskyldunni í
öruggt skjól í Reykjavík, bjargað
búslóðinni og klárað vinnutengd
verkefni frétti hann að það
vantaði starfsmann til að sinna
útreikningum og þjónustustörfum
hjá Viðlagasjóði í Eyjum. Arnar
fékk starfið.
„Þá kom sér vel að hafa unnið
við verslunar- og skrifstofustörf
og að þekkja vel staðhætti í
Eyjum. Skrifstofur Viðlagasjóðs
voru þá á 2. og 3. hæð í húsi
Útvegsbankans við Kirkjuveg,”
segir Arnar. Þegar hann hóf störf
voru helstu verkefnin að verja
byggðina og höfnina. „Komið
hafði verið upp varnargörðum
og var reynt að hemja framgang
hraunsins. Þá fór mikil vinna í
að halda olíukyndingum í húsum
gangandi til þess að koma í veg
fyrir skemmdir. Hraunið brast
fram þegar leið á mars 1973 og
fóru þá mörg íbúðarhús og at-
vinnuhúsnæði undir á skömmum
tíma. Í lok mars kom mjög öflugur
dælubúnaður frá Bandaríkjun-
um og voru 40 sjódælur settar
upp á Básaskersbryggju. Þaðan
voru lagðar sverar pípur upp að
hraunkantinum og sjónum dælt
á hraunið. Auk þess kældu öflug
dæluskip hraunið við innsigl-
inguna.”
Þegar gasmengunar varð vart í
neðri hluta bæjarins um miðjan
mars 1973 var starfsemi Viðlaga-
sjóðs, bæjarskrifstofur, mötu-
neyti björgunarfólks, stjórnstöð
Scot-Ice og Ice-Can neðansjáv-
arstrengjanna og fleira flutt úr
miðbænum og í hús Gagnfræða-
skólans (FÍV).
„Ég var einn þeirra sem sóttu
eldmessuna í Landakirkju að
kvöldi 22. mars 1973. Það var
alveg ógleymanleg stund og
ekki síður það sem á eftir fylgdi.
Ríkisútvarpið var mætt þarna en
enginn frá Sjónvarpinu. Það voru
þarna þrír menn frá BBC sem
náðu nokkrum skotum í kirkjunni.
Það myndefni fannst 25 árum
síðar. Þá skrifaði sá sem farið
hafði fyrir hópi BBC og lýsti
áhuga á að skrifa barnabók um
komu Keikós! Hann nefndi að
hann hefði áður komið til Eyja og
stjórnað gerð þáttar um Eyjagosið
fyrir BBC. Okkur hafði vantað
nafnið á stjórnanda þáttarins
en þarna var það komið. Jakob
Frímann Magnússon, nú alþingis-
maður sem þá var í London, gat
nálgast myndefnið og við fengum
það á diski. Þar voru viðtöl við
Vestmannaeyinga og fleira.”
Dælubúnaður og dugmiklir
starfsmenn skiptu öllu
Sama dag og eldmessan var
haldin hófst óviðráðanleg framrás
hraunsins og fóru um 100 hús
undir á skömmum tíma. Arnar
segir það vera umhugsunarvert
hvort minna tjón hefði orðið
ef vatnsdælurnar hefðu komið
hálfum mánuði fyrr. Þá á hann
sérstaklega við framrásina eftir
25. mars þegar Heimatorg, Raf-
veita Vestmannaeyja og húsin þar
í kring urðu hrauninu að bráð.
Byrjað var að hreinsa gjall af
nokkrum götum í apríl 1973
meðan gosið var enn í fullum
gangi. Þetta var nauðsynlegt svo
hægt væri að komast um bæinn
með tækjabúnað. Dælurnar voru
þá farnar að skila fullum afköst-
um. „Þessi öflugi búnaður og
dugnaður þeirra sem að verkefn-
um komu skipti öllu og verður
aldrei að fullu þakkaður. Þegar
hraunkanturinn hélst óbreyttur í
lok apríl jókst bjartsýni á framtíð
byggðar í Eyjum. Viðlagasjóður, í
Eldgosið 1973 breytti öllu
Arnar Sigurmundsson var framkvæmdastjóri Viðlagasjóðs
Ógleymanleg eldmessa Umfangsmikið tjónamat
Í forystusveit lífeyrissjóða í 30 ár Mikil útgáfustarfsemi í Eyjum
GUÐNI EINARSSON
gudnieinars@gmail.com
2023 - Arnar Sigurmundsson hefur verið forystumaður í félags- og menningarmálum Vestmannaeyja um áratuga-
skeið. Þá var hann lengi í forystusveit lífeyrissjóða landsmanna og í atvinnulífinu. Ljósmynd/Sindri
2023 - Hjónin Arnar Sigurmundsson og Guðrún Stefánsdóttir njóta
lífsins á Tenerife.