Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2023, Blaðsíða 25
21. desember 2023 | | 25
„Þetta var ákaflega stór dagur og
sérstaklega ánægjulegur. Mikil
tímamót. Stóri kosturinn er, nú
þegar Ísfélag hefur verið skráð
á markað, hvað það stendur
styrkum fótum og hefur margar
stoðir. Öflugt í bæði uppsjáv-
arfiski og botnfiskvinnslu bæði
á sjó og í landi,“ sagði Ólafur
Helgi Marteinsson, fyrrum
framkvæmdastjóri Ramma hf. á
Siglufirði.
„Rammi kemur inn með rækju-
verksmiðju hér á Siglufirði og
hér er líka kítósanverksmiðja sem
framleiðir kítósan úr rækjuskel.
Við búum til ýmsar neytendavörur
og seljum til annarra framleiðenda
sem nota efnið í lyf, fæðubótar-
efni, smyrsl, snyrtivörur og mat-
væli. Rammi er með landvinnslu
i Þorlákshöfn, sem var þangað
til fyrir tveimur árum mjög
öflug í humri. Nú einbeitum við
okkur að vinnslu á þorski, ýsu og
karfa. Vonandi líða ekki mörg ár
þangað til við förum að veiða og
vinna humar á ný. Sólberg er stór
frystitogari sem gerður er út frá
Fjallabyggð. Sólberg ÓF-1 hefur
verið aflahæsta bolfisskip á Íslandi
síðan það kom nýtt til landsins
árið 2017, líklega er það fjórða
stærsta fiskvinnsla á Íslandi. Svo
er nýr togari í smíðum í Tyrklandi
sem áætlað er að verði afhentur í
lok febrúar. Nafn nýja skipsins er
Sigurbjörg ÁR-67.“
Ólafur segir rekstur sem heyrði
undir Ramma hf. standa á traust-
um fótum. „Það er enginn staður
betri til að gera út frystitogara eins
og Sólberg en Siglufjörður. Hér er
góð höfn, frábærir þjónustuaðilar
og stutt á miðin. Rækjuverksmiðj-
an byggðist hér upp af því að hér
voru góð rækjumið. Það hefur
verið lægð í því nokkuð lengi en
við flytjum inn erlent hráefni, frá
Noregi og Kanada. Höldum úti
einu rækjuskipi en það nægir ekki
til að halda upp fullri vinnslu í
verksmiðjunni.“
Ólafur segir fólk fyrir norðan
ekki þurfa að óttast um sinn hag.
Sameiningin og samvinnan hafi
gengið vel enda valinn maður í
hverju rúmi. „Ísfélag hf. stendur á
traustum grunni. Þar lögðu saman
tvö mjög öflug og vel rekin fyr-
irtæki með afar sterkan efnahag.
Ísfélagið hefur tækifæri til þess
að vaxa, bæði innan þess ramma
sem fiskveiðistjórnunarkerfið
leyfir og í ýmsum hliðargreinum
og nýsköpunarstarfsemi. Þannig
að ég held að allir sem starfa hjá
fyrirtækinu geti horft björtum
augum til framtíðar. Við leggjum
metnað okkar í að félagið eflist
og dafni. Frá því við tókum þessa
ákvörðun, um að sameina félögin,
hefur samstarfið gengið mjög
vel. Félögin, þó ólík séu, eiga
mjög vel saman enda hugsunin og
stefnan sú sama þegar kemur að
rekstri,“ sagði Ólafur að endingu.
Þetta er mikil tímamót, líka fyrir
Guðbjörgu Matthíasdóttur, ekkju
Sigurðar Einarssonar og fjöl-
skyldu. Fjölskyldan hefur verið
stærsti hluthafinn í félaginu frá
því Sigurður féll frá árið 2000.
Frá þeim tíma hefur félagið haldið
áfram að eflast og styrkjast. Guð-
björg hringdi bjöllunni til að hefja
viðskiptin í Kauphöll og naut til
þess aðstoðar barnabarna sinna,
þeirra Sigurðar Boga og Magnús-
ar Úlfs.
Að sögn Einars Sigurðssonar,
varaformanns stjórnar Ísfélags er
fjölskyldan ánægð með útboðið.
„Það gekk betur en við þorðum
að vona. Ekki síst í ljósi þess að
hlutabréfamarkaðurinn var daufur
í allt haust. Gekk útboðið mjög
vel þegar upp var staðið, eins
kynningarfundir með fjárfestum
og útboðið sjálft var vel heppnað.
Bankarnir þrír sem sáu um útboð-
ið stóðu sig mjög vel.
Í okkar huga er þetta upphaf á
vegferð frekar en eitthvað annað.
Þessi mikla þátttaka sýnir trú
á félaginu og starfsfólki þess
auk þess að fjárfestar hafa trú á
sjávarútvegi. Við höfum líka þá
trú og erum áfram stærsti eigandi
félagsins. Ef greinin fær að halda
áfram að þróast og dafna mun
íslenskur sjávarútvegur áfram vera
í fremstu röð,” segir Einar.
Eftir sameiningu við Ramma er
félagið orðið þriðja stærsta sjáv-
arútvegsfélag landsins en er enn
þá talsvert langt frá hámarkseign
á aflaheimildum. „Sameiningin
gekk vel enda vart við öðru að
búast. Rammi var mjög vel rekið
fyrirtæki og eigendur hugsa á
svipuðum nótum og við, til langs
tíma litið. Þeir hafa sýnt í sínum
rekstri að hversu öflugir þeir eru.
Ég held að þarna hafi tvö mjög vel
rekin félög, með öflugt starfsfólk
og stjórnendur sameinast í eitt
öflugt félag. Við erum alla vega
stolt hversu vel tókst til í þessu
útboði,” segir Einar að lokum.
Erum stolt af hversu vel tókst til
Eiga vel saman þó ólík séu
Stórfjölskyldan. Magnús, Bylgja, Sigurður Bogi, Margrét Kristín, Páll Gústaf, Guðbjörg, Magnús Úlfur, Vala, Einar,
Sigurður, Kristinn og Maren.
Stjórn og starfsfólk: Sigríður Katrín Stefánsdóttir, Einar Sigurðsson, Ell-
ert Hlöðversson, Anton Felix Jónsson, Guðrún Özurardóttir, Hildur Karen
Haraldsdóttir, Björn Hákonarson, Hermann Örn Pálsson, Stefán Friðriksson,
Hreiðar Már Hermannsson, Erlendur Hjartarson, Þorbjörg Kristjánsdóttir,
Þórður Þórðarson og Unnar Már Pétursson.