Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2023, Side 34
34 | | 21. desember 2023
höldum tvenn jól annars vegar
íslensk 24. desember og svo
úkraínsk 7. janúar.“ Tati er alin
upp við það eins og flestir Úkra-
ínumenn að halda jólin samkvæmt
rússnesku rétttrúnaðar kirkjunni
í janúar. „Við komum saman við
og fjölskylda systur minnar við
bæði tilefni og opnum pakka og
höldum í okkar hefðir í bland við
nýjar.“ Þegar talið barst að úkra-
ínskum jólahefðum kenndi ýmissa
grasa. „Það er mikilvægt að bjóða
upp á tólf rétti í jólamatinn og það
er mikilvægt að smakka allt. Einn
mikilvægur réttur sem má ekki
vanta er blanda af valmúafræum,
rúsínum og hunangi. Það verða
allir að borða eina skeið af því.
Hinir réttirnir eru blanda af ýmsu
mismunandi eftir fjölskyldum.“
Syngja fyrir farsælu ári
Önnur mikilvæg hefð í hefð í
huga Tati sem ekki síður vakti
áhuga blaðamanns er „Kolyad-
ky“ það er þegar fjölskyldan fer
saman út í sérstökum klæðnaði
með skreytingar og bankar upp á
hjá fólki og syngur fyrir húsráð-
endur. Þetta svipar til „caroling“
sem flestir þekkja úr erlendum
jólamyndum, siðurinn á sér þó
mjög langa sögu og djúpa mein-
ingu. „Þetta eru ekki hefðbundin
jólalög heldur sérstök lög sem
hafa það hlutverk að óska hús-
ráðendum velfarnaðar á komandi
ári og hluti af því er að dreifa
hveiti fyrir framan húsið. Það
á að tryggja að allir fái brauð á
heimilinu og enginn verði svangur
á komandi ári.“ Söngvararnir bera
að sögn Tati sérstakt höfuðfat og
skreytingar og hluti af jólaundir-
búningi er að undirbúa þennan
gjörning. Þá er til siðs að þeir sem
fá þessa skemmtilegu heimsókn
launi hana með einhverju smáleg-
ur, oftast eru það einhver sætindi
eða smáar gjafir. „Þegar ég var
yngri fannst mér samt skemmti-
legast að fá pening,“ sagði Tati og
glotti.
Landnemi
Tati hefur ekki látið það duga að
vinna á tveimur stöðum heldur
hefur líka sótt sér menntun frá því
hún kom hingað til lands. Tati fór
á námskeið í kennslufræði fyrir
leiðbeinendur í samfélagsfræðslu
sem kallast Landneminn. Þetta
er 14 klukkustunda námskeið þar
sem hún fær réttindi til þess að
kenna námskeiðið. Námskeiðið
er ætlað fullorðnum innflytjend-
um þar sem þeir fá mikilvægar
upplýsingar um Ísland og réttindi
og skyldur í íslensku samfélagi.
Tilgangur með að fara á Land-
nemann er að nemendur öðlist
þekkingu á mikilvægum, söguleg-
um, félagslegum, efnahagslegum,
menningarlegum, lagalegum og
pólitískum aðstæðum á Íslandi
og að þeir geti tjáð sig um þessar
aðstæður. Þá er lögð áhersla á
að þeir tileinki sér þekkingu um
eigin réttindi, tækifæri og skyldur
í íslensku samfélagi – og hvernig
þeir geta notað þessa þekkingu í
daglegu lífi. „Ég var svo heppin
að hafa systur mína og manninn
hennar til þess að hjálpa mér og
mig langar til að hjálpa öðrum að
setjast að hérna. Ég er að stefna á
að kenna þetta námskeið í febrúar
bæði í stað- og fjarnámi. Þetta
er ekki bara fyrir flóttamenn eða
fólk frá Úkraínu heldur bara alla
innflytjendur. Ef að sá sem les
þetta þekkir einhvern sem gæt
haft not af þessu námskeiði má sá
hinn sami endilega hafa samband
við Visku.“
Besti staður í heimi
Aðspurð um framtíðina segir hún
ekki sjá fyrir sér að fara frá Eyjum
á næstu árum. „Okkur líður mjög
vel hér og vil gera allt til þess
að Dima fái að klára skólagöngu
á Íslandi. Ef það verður í boði
fyrir okkur þá verðum við hér.
Þetta er einstakur staður. Ég vil
að hann komist í háskóla og fái
góða menntun. Það er ótrúlegt að
koma til lands sem flóttamaður
og finna að maður sé velkominn
og sé tekið sem hluta af heildinni.
Þið eigið þetta land þar sem allir
eiga tækifæri á því að gera það
sem þeir vilja. Hér er varla til
neitt sem heitir stéttaskipting eða
spilling.“ Tati starfaði um borð í
skemmtiferðaskipum í sjö ár og
heimsótti fjölda landa og hitti
mikið af fólki. Hún segir að eitt
sem sé alveg einstakt á íslandi sé
öryggið. „Það er gott fólk á Ís-
landi sem hugsar um hvort annað.
Börn eru örugg á Íslandi, það er
mjög merkilegt.“
Þau mæðgin hafa komið sér fyrir
í góðri íbúð í austurbænum. „Það
er merkilegt að búa hérna við
hraunjaðarinn og hugsa til þess að
hér við hliðina á hafi staðið hús
sem fóru undir hraun.“ Eðli máls-
ins samkvæmt áttu þau ekki mikið
innbú þegar þau fengu íbúðina.
„Lára Dögg setti póst á facebook
og við vorum komin með allt sem
okkur vantaði samdægurs, hvar
í heiminum gerir einhver svona
fyrir ókunnugan útlending? Ég
gæti verið að labba úti á götu og
ég gæti hitt forsetann eða ráðherra
og heilsað þeim og þeir myndu
heilsa til baka. Það gerist bara á
einum stað í heiminum.“
Tati segist hafa þurft að venjast
ýmsu sem snýr að þessu frelsi og
öryggi. „Ég hef alveg átt erfitt
með það. Fljótlega eftir að við
komum fór Dima út að leika með
frænku sinni og svo hafði ég ekk-
ert heyrt í þeim í tvo tíma. Ég var
farin að hafa áhyggjur og hljóp
á milli glugga að leita að þeim.
Systir mín var að reyna koma mér
í skilning um það hvernig þetta
virkaði. Ég hafði miklar áhyggj-
ur af því ef hann meiddi sig eða
eitthvað kæmi fyrir hann. Þá sagði
systir mín „Slakaðu á, þetta er
besti staður í heimi til að senda
börn út að leika, ef eitthvað gerist
þá hjálpar honum einhver eða
hringir í okkur,“ Þetta var ótrúleg
upplifun fyrir mér og í raun alger
forréttindi. Íslendingar hafa það
ótrúlega gott og ég vildi að allir
gætu lifað eins og Íslendingar
þá væru færri vandamál,“ sagði
þessi jákvæða og þakkláta kona
að lokum.Dima kann vel við sig á Íslandi.
Olena systir Tati og fjölskylda hennar Oleg, Suzie, Olena, Arina og Adrian.
Arina og Dima taka virkan þátt í pysjuveiðum.