Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2023, Qupperneq 36
36 | | 21. desember 2023
„Vel yfir 200 nemendur hófu
nám og var námið fjölbreytt og
krefjandi eins og svo oft áður.
Nemendur voru skráðir á fjórtán
mismunandi brautir og vel yfir
70 áfangar í boði. Skipting
milli bóknáms og verknáms var
verknáminu í vil, en iðnnám er
„heitasta kartaflan í pottinum“
og miklar líkur eru á að svo verði
áfram,“ sagði Thelma Gísladóttir
aðstoðarskólameistari.
„Grunndeild rafiðna fór af stað
á þessari önn með 19 nemendur.
Eftirspurn í húsasmíðanámi jókst
verulega. „Fyrsti hópurinn mun
hefja nám strax eftir áramótin.
Stórt og gott verkstæði verður sett
upp í austurhluta skólans þar sem
nú er vinnurými nemenda og lista-
námið fer fram. Hluti af smíða-
kennslunni mun einnig fara fram
utandyra enda erfitt að byggja hús
innandyra. Nokkrir nemendur
hófu nám við C-stig í vélstjórn og
vonumst við til að fá fleiri nem-
endur á brautina svo hægt verði að
halda áfram því góða námi.
Múraranemar mættu í síðustu
loturnar núna á þessari önn og
erum við í dag að útskrifa 16 múr-
ara. Og geri aðrir betur!,“ sagði
Thelma og nefndi næst bóknámið
sem hún sagði eiga undir högg að
sækja.
„Nám sem um þessar mund-
ir er að fara í gegnum miklar
breytingar. Og nú eru svo
sannarlega áskoranir og tækifæri
til að efla námið, bjóða tæknina
velkomna í hús og læra að vinna
með hana. Við erum jú öll að læra
saman og eigum að njóta þess að
gera það hlið við hlið.
Svo þarf að finna annað hentugt
og gott rými fyrir listnámið því
aðsóknin í það er mikil og hefur
á síðustu árum farið ört vaxandi.
Sköpun er stór þáttur af námi
og erum við alltaf að sjá betur
hvernig listin teygir sig inn í
aðra áfanga. Til verða fallegar
myndskreyttar ljóðabækur,
myndasögur, myndrænar kynn-
ingar og svo margt fleira. Það býr
mikil list í okkar nemendum.
Öflug ÍBV akademína
Í samstarfi við ÍBV akademíu
stunda 35 nemendur knattspyrnu
og handknattleik. Öflugt ungt fólk
sem fer fyrr á fætur en margir
jafnaldrar þeirra og æfa áður
en þau mæta í skólann. Svo eru
margar aðrar æfingar og skyldur
sem fylgja að vera hluti af þessum
hópi. Fjórir nemendur útskrifast
frá akademíu ÍBV og FÍV hér í
dag og verða nöfn þeirra lesin
upp síðar í þessari athöfn,“ sagði
Thelma sem að lokum beindi orð-
um sínum til útskriftarnema.
„Mig langar að þakka ykkur út-
skriftarnemendum fyrir allar góðu
samverustundirnar og samstarfið.
Það hefur verið ánægjulegt að fá
að vinna með ykkur og fylgjast
með ykkur styrkjast og þrosk-
ast, bæði sem nemendur og sem
einstaklingar. Einnig vil ég þakka
samstarfsfólki mínu fyrir vel
unnin störf á önninni og sérstakar
þakkir til þeirra sem komu að
undirbúningi og framkvæmd
þessarar útskriftar hér í dag.
Mig langar að þakka ykkur út-
skriftarnemendum fyrir allar góðu
samverustundirnar og samstarfið.
Það hefur verið ánægjulegt að fá
að vinna með ykkur og fylgjast
með ykkur styrkjast og þrosk-
ast, bæði sem nemendur og sem
einstaklingar. Einnig vil ég þakka
samstarfsfólki mínu fyrir vel
unnin störf á önninni og sérstakar
þakkir til þeirra sem komu að
undirbúning og framkvæmd
þessarar útskriftar hér í dag.“
Iðnnám á uppleið og
bóknám á tímamótum
Útskriftarhópurinn. Efsta röð: Einar Þór Jónsson, Gauti Gunnarsson, Dagur Einarsson, Hinrik Hugi Heiðarsson, Ísak Huginn Héðinsson, Óli Jakob Jónsson, Breki
Einarsson, Sindri Georgsson. Miðröðin: Haukur Helgason, Elmar Erlingsson, Arnór Ingi Pálsson, Aron Steinar G. Thorarensen, Elliði Snær Gústafsson, Tinna
Mjöll Guðmundsdóttir, Konstantinas Zapivalovas. Neðsta röð: Ailandas Baurinas, Albert Snær Thórshamar, Birgir Nielsen Þórsson, Björn Grétar Sigurðsson,
Bogi Matt Harðarson, Daníel Gústaf Hlöðversson og Helga Kristín Kolbeins.
SINDRI ÓLAFSSON
sindri@eyjafrett ir. is
ÓMAR GARÐARSSON
omar@eyjafrett ir. is