Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2023, Page 39
21. desember 2023 | | 39
GLEÐILEG JÓL
Óskað er eftir tilnefningum til
Menntaverðlauna Suðurlands 2023
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga óska eftir
tilnefningum til Menntaverðlauna Suður
lands 2022. Frestur til tilnefninga er til mið
nættis fimmtudaginn 4. febrúar nk. og þær
skal senda á netfangið: menntaverðlaun@
sudurland.is. Veitt verður viðurkenning sem
og peningaverðlaun. Nánari upplýsingar má
nálgast á heimasíðu SASS: sass.is.
„Það er mikilvægt að hver og einn
einstaklingur í þjóðfélaginu sé
vel menntaður, mikilvægt fyrir
einstaklinginn, samfélagið og
efnahagslífið. Menntun eykur
víðsýni, eykur skilning okkar á
því að líf allra er jafn mikilvægt“
sagði Helga Kristín Kolbeins,
skólameistari. „Í Framhaldsskól-
anum í Vestmannaeyjum erum við
að mennta einstaklinga til að tak-
ast á við meira nám og störf fram-
tíðarinnar. Störf framtíðarinnar
verða ólík því sem við þekkjum í
dag. Gervigreind og vélmenni eru
sífellt sýnilegri í umhverfinu og
gera það að verkum að færra fólk
þarf til að sinna mörgum störfum
og þau störf sem verða til, krefjast
einstaklinga sem hafa víðtæka
þekkingu á mörgum sviðum.“
Helga Kristín kom víða við í
ræðu sinni, m.a. áhrif gervigreind-
ar sem nú er að ryðja sér til rúms.
Líka þær miklu breytingar sem
eru að verða á svo mörgum svið-
um þjóðfélaginu. Breytingar sem
taka verður tillit til í skólastarfi.
„Í Framhaldsskólanum vinna
nemendur saman, jafnframt því
sem þeir stunda nám á ólíkum
námsbrautum. Sú samlegð veitir
okkur tækifæri til að bjóða upp
á fjölbreytt nám og geta þá fleiri
fundið nám við hæfi. Við erum
með nemendur á öllum aldri og
er það mikill kostur, því reynslan
sem eldri nemendur taka með sér
í skólann er mikils virði og eflir
skólann. Margir koma inn í skól-
ann eftir að hafa farið í raunfærni-
mat sem styttir námstíma þeirra.
Samfélagsbreytingarnar eru
vissulega hraðar og hafa þær áhrif
á líf og störf okkar allra og hafa
áhrif inn í skólanna. Við stöndum
núna eins og oft áður frammi fyrir
áskorunum sem þarf að bregðast
við og finna upp aðra kosti.
En við vitum einnig að menntun
gerir meira en að bregðast við
breyttum heimi. Menntun breytir
heiminum.“
„Markmið Framhaldsskólans í
Vestmannaeyjum er að einstak-
lingar útskrifist með þá hæfni
sem nýtist þeim til að halda áfram
að vaxa og dafna. Mennta fólk
þannig að það geti nýtt sé öll
þau tækifæri sem framtíðin ber í
skauti sér. Ef við ætlum að vera
tilbúin að mæta nýjum tímum og
geta nýtt okkur þá tækni sem er
í boði, þarf miklu meira en orðin
tóm. Við verðum að láta námið
vera í forgangi og gera nemend-
urna hæfa til að takast á við þá
spennandi tíma sem bíða okkar.“
Verið stolt
Að lokum ávarpaði Helga Kristín
útskriftarnema. Þakkaði þeim
fyrir samstarfið, þau hafi staðið
sig vel verið skólanum til sóma.
Til hamingju með árangurinn
ykkar. Þið eruð öll sigurvegarar.
Þið hafið öll náð takmarki ykkar.
Öll hafið þið þurft að leggja
á ykkur mikla vinnu til að ná
þessum áfanga en það dugði til
því hér eruð þið nú. Verið því stolt
af árangri ykkar framtíðin blasir
við. Munið að hlusta á sjónarmið
annarra.
Umgangist alla þá er á vegi
ykkar verða af sömu alúð – háa
sem lága. Komið fram við aðra
eins og þið viljið að þeir komi
fram við ykkur. Hafið í huga að
raða ykkur ekki með einstakling-
um sem rífa ykkur niður með
nöturlegum athugasemdum og
neikvæðri umræðu heldur veljið
ykkur vini sem styrkja, auðga og
efla. Hafið hugfast að ekkert það
starf sem ykkur verður falið er svo
ómerkilegt að það eigi ekki skilið
að vera leyst af hendi af fyllstu
alúð og samviskusemi. Verið trú
yfir því sem ykkur er treyst fyrir –
í stóru sem smáu. Virðið og verið
trú uppruna ykkar og Vestmanna-
eyjum – leggið alúð við móður-
málið,“ sagði Helga og þakkaði
útskriftarnemum fyrir samfylgd-
ina og óskaði þeim fararheilla
hvert sem leiðir liggja.
Menntun breytir heiminum
Helga Kristín Kolbeins, skólameistari FÍV.