Dagfari - 01.03.2024, Page 7
Nýtt friðarmerki
Málsverður á föstudaginn langa
Fjáröflunarmálsverðir SHA eru mikilvægur þáttur í starfsemi
samtakanna, bæði sem félagsleg aðgerð en einnig til að
standa straum af rekstri Friðarhúss sem er mikilvæg miðstöð
fyrir hvers kyns róttæka starfsemi.
Málsverðirnir eru að jafnaði síðasta föstudag í hverjum mánuði
og engin breyting verður á að þessu sinni þótt 29. mars beri upp
á föstudaginn langa. Að venju mun borðhald hefjast kl. 19 en
verðið er litlar 2.500 krónur á manninn.
Hátíðaraðalfundur Friðarhúss SHA
ehf Friðarhús SHA ehf. var stofnað árið 2004 með það að
markmiði að festa kaup á húsnæði fyrir starfsemi Samtaka
hernaðarandstæðinga.
Einungis ári síðar náðist sá áfangi þegar Friðarhúsið á
Njálsgötu 87 var opnað. Fjöldi fólks er hluthafar í félaginu sem
heldur utan um fasteignina en hófstillt leiguverð SHA
stendur undir viðhaldi, rekstri og opinberum gjöldum.
Í tilefni af afmælinu verður venju fremur mikið á boðstólum á
aðalfundi félagsins sem haldið verður sunnudaginn 14. apríl
kl. 14 – að sjálfsögðu í húsnæði félagsins að Njálsgötu 87.
Hluthafar eru hvött til að mæta, en þau sem ekki eiga heiman-
gengt eru hvött til að koma umboði fyrir hlut sínum til annarra
félagsmana svo fundurinn verði löglegur, en til þess þurfa hand-
hafar amk helmings hluta að vera viðstödd. Umboð má einnig
senda á sha@fridur.is