Dagfari - 01.03.2024, Síða 19
Kjarnorkuváin 2024
Atburðarás undanfarinna ára hefur
einkennst af vaxandi spennu á milli
Bandaríkjannaog Rússlands, og þar
með aukinni spennu þegar kemur
að kjarnavopnamálum. Nú er
svo komið að allir helstu afvopn-
unarsamningar frá tímum kalda
stríðsins hafa verið felldir úr gildi.
Segja má að hafið sé nýtt kalt stríð á
milli stórveldanna með tilheyrandi
vopnakapphlaupi. Það er ekki
ósvipað því fyrra, en þó vissulega
ekki af sömu stærðargráðu, það er
stigsmunur frekar en eðlismunur
á. Hér í þessari grein verður fjallað
um nýja kjarnavopnakapphlaupið á
milli Bandaríkjanna og Rússlands,
þar sem hvor hliðin verður skoðuð
fyrir sig. Fyrst verður málið skoðað
út frá sjónarhorni Bandaríkjanna
og síðan Rússlands.
Síðan 1947 hafa kjarnorkuvísinda-
menn, sem gefa út tímaritið Bulletin
of Atomic Scientists, haldið úti
hinni svokölluðu dómsdagsklukku,
þar sem miðnætti táknar kjarnorku-
styrjöld og endalok
siðmennigarinnar. Í yfirlýsingu
vísindamannanna frá 2020 var
vísirinn færður í 100 sek. í mið-
nætti, en það er nær miðnætti
heldur en vísirinn hefur nokkurn
tímann verið færður frá upphafi
(þ.m.t. á hápunkti kalda stríðsins).
Meðal helstu ástæðna voru sagðar
vera niðurbrot afvopnunar-
samninga. Árið 2023 var vísirinn svo
færður í 90 sek. í miðnætti vegna
stríðsins í Úkraínu og aukinnar
spennu milli stórveldanna í
tengslum við það.
Í yfirlýsingunni frá 2020 segir m.a.
að: „á sviði kjarnorkumála hafa
þjóðarleiðtogar bundið enda á eða
grafið undan helstu vopnaeftirlits-
samningum og skapað umhverfi
sem stuðlar að endurnýjuðu kjar-
navopnakapphlaupi, að aukinni
útbreiðslu kjarnavopna, og hafa
lækkað þröskuldinn sem stendur í
vegi fyrir kjarnorkustríði… Samstarf
Bandaríkjanna og Rússlands um
vopnaeftirlit og afvopnun er
nú nánast ekki neitt.” Í nýjustu
yfirlýsingunni, fyrir árið 2024, segir
jafnframt að öll kjarnorkustór-
veldin, Bandaríkin, Kína og
Rússland, séu „að eyða miklum
fjárhæðum í að nútímavæða
kjarnavopnabúr sín“ á sama tíma og
„alþjóðlega vopnaeftirlitskerfið
hefur hrunið.“
Í nóvember 2022 varaði aðalritari
Sameinuðu þjóðanna, António
Guterres, heiminn við því að það
eina sem skildi frá kjarnorkustríði
væri bara „einn misskilningur eða
misbrestur [á milli stórveldanna].“
Þá hafa bæði Bandaríkjaforseti og
Rússlandsforseti sagt álíka, að nú sé
meiri hætta á kjarnorkustríði heldur
en nokkurn tímann á hápunkti
kalda stríðsins. Biden forseti orðaði
það þannig að núna væri meiri
hætta á „nuclear armageddon“
heldur en í Kúbudeilunni árið 1962.
Það verður að teljast mjög merkilegt
og aðkallandi að báðir leiðtogar
stórveldanna hafa sagt þetta hreint
út og viðurkennt opinberlega. Það
er fordæmalaust.