Dagfari - 01.03.2024, Síða 24
New START takmarkar sem sagt
strategísk kjarnavopn við töluna
1550, „til notkunar” (deployed), en
það á við um kjarnaodda á eld-
flaugum og sprengjur í sprengju-
flugvélum sem eru tilbúnar að vera
skotið á loft. Samkomulagið nær
ekki til allra kjarnavopna sem eru
í langtímageymslu í vopnabúrum,
sem eru talsvert fleiri, en ekki
endilega öll nothæf, heldur gamlar
birgðir sem hafa verið að safna ryki
frá því á tímum kalda stríðsins. New
START takmarkar einnig fjölda
þeirra vopna sem eru notuð til að
skjóta kjarnorkusprengjum, en það
eru langdrægar eldflaugar (ICBMs),
kafbátaeldflaugar(SLBMs) og spreng-
juflugvélar, sem mega ekki vera fleiri
samtals heldur en 800 (ath. að eitt
slíkt vopn getur verið fært um að
skjóta mörgum kjarnaoddum á sama
tíma).
Rússar drógu sig sem sagt til baka úr
New START í febrúar 2023. En vert
er að taka fram að þeir virðast ennþá
fara eftir takmörkunum samning-
sins, þar sem þeir hafa ekki
fjölgað strategískum kjarnavopnum
eða langdrægum eldflaugum sínum
umfram það sem er tiltekið í
samningnum.
Fjallað er um þetta í nýjustu útgáfu
Bulletin of Atomic Scientists (vol. 80,
issue 2, 2024) í greininni „Russian
nuclear weapons, 2024”.
Í nóvember 2023 drógu Rússar sig
sömuleiðis úr samningum um
alhliða bann við kjarnavopnatil-
raunum (Comprehensive Nucle-
ar-Test-Ban Treaty eða CTBT). Einnig
er fjallað um þetta í nýjustu útgáfu
Bulletin of Atomic Scientists, sjá
greinarnar „Preserving the nucle-
ar test ban after Russia revoked its
CTBT ratification” og „The horrors
of nuclear weapons testing.” Þessi
ákvörðun vakti áhyggjur um að þetta
væri mögulega skref í átt að því að
hefja aftur kjanavopnatilraunir. Að
þetta gerðist samhliða stríðinu í
Úkraínu jók vissulega á spennuna.
Þetta mál nær reyndar aftur fyrir
upphaf Úkraínu-stríðsins, þar sem
það voru ýmis teikn á lofti um að
stórveldin hefðu mögulega áhuga
á því að hefja kjarnavopnatilraunir
á ný. Gervihnattamyndirnar sýna
að Rússar hafa haldið uppi kjarna-
vopnatilraunastöð sinni á eyjunni
Novaya Zemlya, sem og Bandaríkin í
eyðimörkinni Nevada, og Kína í Lop
Nur í Xinjiang-héraði. Samkvæmt
gervihnattamyndunum hefur verið