Dagfari - 01.03.2024, Qupperneq 26
Ávarp friðarsinna
vegna
Evrópuráðsfundar
Sem kunnugt er fundaði Evrópuráðið í Reykjavík á síðasta ári. Mikið var
umleikis og öryggisráðstafanir miklar. Þrátt fyrir löggufargan og
úrhellisrigningu náðu hernaðarandstæðingar að vekja athygli á málstað
sínum í tengslum við ráðstefnuna.
Málefni Úkraínu voru efst á baugi á Evrópuráðsfundinum. Að því tilefni
söfnuðu Samtök hernaðarandstæðinga 100 manns á yfirlýsingu þar sem
hvatt var til tafarlauss friðar í landinu. Birtist yfirlýsingin í nokkrum
fjölmiðlum og vakt talsverða athygli. Hún var á þessa leið:
Við undirritaðir friðarsinnar á Íslandi skorum á leiðtoga evrópskra ríkja að
stöðva stríðið í Úkraínu nú þegar og vinna í kjölfarið að friði og samvinnu í
Evrópu.
Stríð eru óásættanleg leið til að útkljá ágreining ríkja eða hópa á milli. Evrópa
getur státað af langri sögu siðmenningar og lýðræðis þar sem samvinna og
þekkingarleit hafa leitt til stórkostlegra framfara. Við höfum einnig upplifað
hrikalegar styrjaldir, átök, sundrungu og ofbeldi. Styrjaldir hafa aldrei leitt
annað en hörmungar yfir álfuna og gera það einnig nú.
Stríðið í Úkraínu verður að stöðva tafarlaust með skilyrðislausu vopnahléi. Í
kjölfarið þarf strax að ræða og semja um langvarandi frið sem er grunnur að
mannréttindum og lýðræði. Friður og framfarir í Evrópu eru sameiginlegt
verkefni álfunnar allrar. Þar mega þjóðarleiðtogar ekki láta sitt eftir liggja.
Byrjum friðarferlið strax í dag.
1. Anna Friðriksdóttir, lyfjafræðingur, Reykjavík
2. Anna Guðmundsdóttir, friðarsinni, Reykjavík
3. Anna S Hróðmarsdóttir, Reykjavík
4. Anna Þorsteinsdóttir, þjóðgarðsvörður, Mývatnssveit
5. Árni Hjartarson, jarðfræðingur, Reykjavík
6. Ásta Steingerður Geirsdóttir, garðyrkjufræðingur og
leiðsögumaður, Borgarfirði eystri
7. Auður Alfífa Ketilsdóttir, Reykjavík
8. Auður Lilja Erlingsdóttir, deildarstjóri, Reykjavík
9. Árni Daníel Júlíusson, doktor í sagnfræði, Reykjavík
10. Björgvin G. Sigurðsson, Selfossi
11. Brynhildur Björnsdóttir, fjölmiðlakona og
söngkona, Reykjavík
12. Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri,
Reykjavík
13. Davíð Kristjánsson, Selfossi
14. Dóra Svavarsdóttir, matreiðslumeistari og
kennari,
Reykjavík
15. Drífa Eysteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Selfossi
16. Drífa Lýðsdóttir, Reykjavík
17. Einar Ólafsson, rithöfundur, Kópavogi
18. Elín Oddný Sigurðardóttir, félagsfræðingur,
Reykjavík