Úrval - 01.03.1967, Side 38

Úrval - 01.03.1967, Side 38
36 ÚRVAL þægindi í þá daga en um borð í þessum Collins gufuskipum. Þarna voru rafmagnsbjöllur og farþega- rúmin hituð upp með gufu, en svo byrjaði Collins á því að lækka far- gjöldin, sem varð honum dýrt síðar. En meðan Bandaríkjamenn voru að smíða þessi miklu tréskip, þá fóru Bretar að þreifa fyrir sér í smíði stórra járnskipa. Þeir héldu því fram, að tré væri ekki nothæft byggingarefni í skip af þeirri stærð, sem Bandaríkjamenn voru að byggja og járnið myndi að öllu hentugra byggingarefni. Fyrsta ferð Atlantic yfir hafið varð hvorki skipi né heldur eigend- unum til mikils sóma. Það bilaði allt, sem bilað gat og skipið var jafnlengi á leiðinni og Great West- ern þrettán árum áður, eða fulla þrettán sólarhringa. í Englandi var gert við það, sem úr lagi hafði farið, brotna hjólspaða og bilaða ventla og aftur var lagt af stað vestur um haf, og nú sló Atlantic öll þekkt met og var tíu daga og sextán tíma á leiðinni. Það varð aldeilis lukka. í Bandaríkjun- um, nú sögðust þeir hafa betur á öllum höfum. Seglskip þeirra voru orðin mjög stór og hraðskreið og nú höfðu þeir eignazt gufuskip, sem var hraðskreiðara en þau brezku, og þannig var þjóðarstolt þeirra endurreist á þessu sviði. En það er ekki allt gull sem gló- ir, og þetta kostaði mikla peninga. Viðgerðarkostnaðurinn varð fljót- lega gífurlegur. Collins lagði mikla áherzlu á að áætlun væri haldin, en það kostaði að skipunum var óvægi- lega beitt og þau gengu því fljótt úr sér. Ekkert slys henti samt hjá Collinslínunni um nokkurra ára bil. Það var árið 1854 að fyrsti harm- leikurinn gerðist. Arctic hafði villzt í svarta þoku út af Cape Race og rakst þar á lítið franskt gufuskip, Vestu. í þeim gauragangi, sem varð við áreksturinn héldu menn að Vesta væri að sökkva og Arcticmenn settu björgunarbát á flot til aðstoðar, en það reyndist ekkert að hjá Vestu og hún kvaddi Aretic virðulega og hélt á brott, ekki vitandi annað en allt væri í lagi þar um borð. Það var þá Arctic, sem var að sökkva. Þegar uppgötvaðist að Artic væri að sökkva, var Vesta horfin og Arc- tic beið þarna örlaga sinna ein og yfirgefin í þokunni og brælunni. Skortur virðist hafa verið á aga hjá skipshöfninni og því farið verr en skyldi, nema Arctic sökk þarna og með henni 322 farþegar og skips- menn og þar var fjölskylda Collins, kona hans, sonur og dóttir. Þetta var hið mesta áfall fyrir skipaútgerðina, en það er sjaldnast ein báran stök, og árið 1856, sigldi annað skip félagsins, Pacific frá Liverpool í janúarmánuði og ætlaði að keppa við Cunard-skipið Persíu, sem var spánýtt járnskip og fyrsta járnskip Cunardsflotans. Pacific fór tveim dögum seinna af stað en Persia, en ætlaði sér samt að verða á undan í höfn í Bandaríkjunum. Það er ekki komið til hafnar á þessari jörð enn þá. Það hvarf ásamt farþegum sínum 45 að tölu og skips- höfn 114 manns og hefur aldrei sézt tangur né tetur af því, eftir að það lét úr höfn í Liverpool. Menn eru
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.