Goðasteinn - 01.09.1970, Qupperneq 46
Hér cr nokkuð dvalið við sögu Umf. Drífanda vcgna þcss, að
þar sem minnzt er á Sigurð er varla hægt að ganga fram hjá
þeim þætti í félagsstörfum hans, sem því félagi er tengdur.
Á árunum, sem verið var að koma á fót Heilsuhælinu á Víf-
ilsstöðum, var stofnað svonefnt Heilsuhælisfélag og var helzti
forgöngumaður þess Guðmundur Björnsson landlæknir og skáld,
hinn öruggi baráttumaður þjóðnytjamála.
í Vestur-Eyjafjallahreppi var stofnuð deild í félaginu og var
Sigurður formaður hennar. Þó ársgjöld væru lág, að þeirra tíma
hætti, mun hafa verið drjúgur stuðningur að þessum félagsskap,
sem starfaði í deildum víðs vegar um land um nokkurra ára bil.
Við barnakennslu starfaði Sigurður nokkra vetur: í A-Landeyj-
um I9i2-’i6, undir V-Eyjafjöllum i9i6-’2o. Hann fór tvisvar fyrir-
lestraferðir á vegum U.M.F.Í. á haustin, áður en kennsla hófst,
unt V-Skaftafellssýslu 1916 og Árn., Borg. og Mýras. 1917. En á
sumrin vann hann oftast heima að búi foreldra sinna.
Hann kvæntist 7.7. 1922. Kona hans var Júlíana Björg Jónsdóttir
f. 1. 7. 1896, og voru þau þremenningar að frændsemi. Foreldrar
hennar voru Jón bóndi og smiður Guðnason í Hallgeirsey og k.
h. Elín Magnúsdóttir. Þau tóku við búi ungu hjónin sama vorið
af foreldrum hans, sem dvöldust áfram á heimilinu bæði til ævi-
loka.
Sigurður hélt áfram umbótum á jörðinni, sem faðir hans hafði
bætt - lengst sem leiguliði - en þcim feðgum báðum hugleikin
ræktunarstörf, unnið bæði að túnrækt, girðingum og framræslu
votlendis. Við umhirðu blómgarðsins hafði Sigurður fengið aukna
aðstoð, þar sem var kona hans. Hún hafði einnig yndi af að
sinna gróðrinum og voru þau hjónin samhent hvarvetna. Var sam-
búð þeirra lánsöm - en ekki varð hún langvinn.
Síðar kom Björg upp trjágróðri og blómskrúði við annan bú-
stað sinn. En Brúnir fóru í eyði 1947 ásamt Tjörnum - tvíbýlis-
jörð - af ágangi vatnanna, eftir að öllum kvíslum af vatnasvæði
Markarfljóts var veitt í farveginn, sem liggur með Eyjafjöllum
og ber Markarfljótsnafnið.
Sigurður gegndi ýmsum störfum fyrir sveit sína og sýslu (sbr.
Kennaratal á Islandi II. og ísl. æviskrár V.) Hann var formaður
44
Goðasteinn