Goðasteinn - 01.09.1970, Síða 58
Berðu nú Jesús bænina mína
blessaðan fyrir föðurinn þinn,
iegðu mér svo liðsemd þína,
að líti hann á kveinstaf minn.
Fyrir þitt heilagt hjartablóð
heyrðu mig nú elskan góð.
Þér sé lofgjörð lögð og framin,
lifandi Guð, um aldir. Amen.
Þessi gamli og góði morgunsálmur er prentaður hér að beiðni
góðs vinar Goðasteins, Einars Einarssonar frá Berjanesi í Land-
eyjum, sem unnað hefur honum um langan aldur. Lokavers hans
kunnu víst flestir Islendingar til skamms tíma. Sigurður Sveinsson
í Nýborg í Vestmannaeyjum lét prenta hann á lausu blaði í
Prentsmiðju Vestmannaeyja um 1916, og mun það nú í fárra
höndum. Fyrirsögn hans þar er: „Gamall sálmur, sem fáir kunna
- en verður þess að ekki gleymist.“
Höfundur sálmsins er mér ókunnur. Séð hef ég hann í handriti
eignaðan sr. Gunnari Gunnarssyni í Laufási, en meir en óvíst er,
að það sé rétt. I afriti teknu af Sigurði Vigfússyni á Brúnum
1920 eftir tvcimur gömlum konum, Valgerði Bjarnadóttur og Ár-
sælu Magnúsdóttur, er sálmurinn eignaður sr. Högna Sigurðssyni
prestaföður á Breiðabólsstað í Fljótshlíð. Verður svo að liggja
milli hluta að sinni, hver kvað guði sínum og allra manna þenn-
an lofsöng.
Þ. T.
56
Goðdstemn