Goðasteinn - 01.09.1970, Blaðsíða 72
synir hans, tveir eða þrír, sem ráðnir voru í skiprúm á togara,
áður en þeir fóru að heiman.
Það var kalsaveður þennan dag, austanstormur og snjókoma
og allhart frost. Við héldum vestur Mýrdal sem leið liggur og
stöðugt bættust fleiri í hópinn, eftir því sem vestar lcorn. Um
kvöldið náðum við undir Vestur-Eyjafjöll og gistum þar á nokkr-
um bæjum, enda um 20 talsins. Um morguninn, þegar við lögð-
um af stað, var komin norðanátt og hörkufrost. Snjólétt var þarna
undir Fjöliunum en allar ár ýmist spilltar eða á haldi.
Þegar við komum að Markarfljóti, leizt okkur ekki á blikuna.
Það var í kreppu af ísum en autt á milli skara. Var nú ekki ann-
að að gera en láta hestana fara niður af skörinni og ofan í ál-
inn. Gekk það sæmilega. Állinn var í bóghnútu á hestunum og
straumþungur. Slysalaust svömluðum við þarna yfir. Gekk okk-
ur nú ferðin greiðiega vestur Landeyjarnar, því hin vötnin, Álar,
Affall og Þverá, voru öll á haldi. Um kvöldið náðum við að
Ægisíðu og gistum þar um nóttina. Var þar allþröngt á þingi.
Ekki var farið lengra á hestunum en bíllinn tekinn í þjónustu
okkar. Jón fylgdarmaður okkar sneri nú austur, en við félagar
settumst upp á opinn vörubílspall. Snjólítið var í Holtunum og
Flóanum, og sóttist ferðin greiðlega. Við fengum okkur hress-
ingu í Tryggvaskála og héldum svo ferðinni áfram vestur Ölfusið.
Þegar kom upp í Kamba, tók að versna færðin, og í miðjum
Kömbum gafst bíllinn upp. Var nú ekki um annað að gera en
treysta á „hesta postulanna" og ganga upp á gamla móðinn. Tók-
um við farangur okkar og lögðum á Hellisheiði. Færð var fyrst
sæmileg en versnaði er vestar dró.
Við förunautar bárum allþungar byrðar, þetta 40-50 pund. Var
það farangur okkar. Ætlunin var að ná Hólnum um kvöldið, og
var allmikið kapp í mönnum með það, hver þreytti gönguna bezt
og næði fyrstur að Kolviðarhóli. Við urðum þrír fyrstir: Hákon
Einarsson úr Vík, Vigfús Ólafsson frá Lækjarbakka og ég. Var þá
að dimma af kvöldi og byrjuð snjókoma.
Félagar okkar komu nú hver á fætur öðrum, von bráðar. Þarna
á Kolviðarhóli, hjá Sigurði gestgjafa, var margt manna komið á
undan okkur, svo að hvert rúm var skipað, er við bættumst í
70
Goðastemn