Goðasteinn - 01.09.1972, Side 8

Goðasteinn - 01.09.1972, Side 8
félag Rangæinga, og rekur útibú á Rauðalæk síðan og hefur sú sameining og samstarf gengið vel. Ég ætia ekki að ræða um daglegan rekstur félagsins, en ég get ekki skilið svo við þetta, að minnast ekki á mismun fyrr og nú. Líti maður til baka yfir 50 ára aldur Kaupfélags Hallgeirseyjar og nær 40 ára aldur Kaupfélags Holtamanna, er nú heitir Kaup félag Rangæinga, Sjáum við miklar framfarir? Já, svo miklar að maður veit ekki aðrar eins á jafnskömmum tíma. Þessar fram- farir munu ekki að litlu leyti samvinnuhreyfingunni í héraðinu að þakka. Enda ég svo þessar línur með kærri þökk fyrir hart nær 40 ára samvinnu og árna Kaupfélagi Rangæinga allra heilla í nútíð og framtíð. Kaupfélag Rangæinga, Rauðalæk Svo sem Ólafur Ólafsson í Lindarbæ segir hér að framan, var Pöntunarfélag Holtamanna stofnað vorið 1930. Stofnfundurinn var haldinn í húsi Rjómabúsins á Rauðalæk hinn 11. maí og sóttu hann um 20 menn, aðallega bændur í Holta- og Ásahreppum. Að- setur þessa nýja félags var ákveðið í Rjómabússkálanum og keypti félagið húsið, þar sem rekstri rjómabúsins var þá hætt. Fyrsti formaður félagsins var kjörinn Bjarni Jónsson í Meiri- Tungu, og með honum í stjórn voru kosnir þeir Helgi Hannesson í Sumarliðabæ og Ólafur Ólafsson í Lindarbæ. Verzlunarstjóri var ráðinn Helgi Hannesson og var það upp- hafið á sautján ára starfi hans hjá féiaginu. Fyrst um sinn var reynt að halda pöntunarfélagsformi á verzluninni og kaupa inn eftir beiðnum viðskiptamanna, en það reyndist þungt í vöfum. Var þá brátt horfið frá þeirri skipan og í staðinn opnuð sölubúð á Rauðalæk. Jafnframt var nafni félagsins breytt og það kallað Kaupfélag Holtamanna. Hélzt það til 1933, er það var skírt Raupfélag Rangæinga. Skálinn á Rauðalæk var um 90 fermetra steinhús með lágu risi. Nægði hann þessu nýja félagi aðeins til að byrja með. Á öðru ári verzlunarinnar var reist í nágrenni skálans 30 ferm. vöru- 6 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.