Goðasteinn - 01.09.1972, Page 21

Goðasteinn - 01.09.1972, Page 21
verið frá Kellingardal í landi þeirrar jarðar í hellrunum fyrir austan Kellingardalsá; líka á stundum frá Bólstað skammt innan við bæinn, hvar þó enn er viðlegt.1' Þó lýsing þessi sé stuttorð, segir hún ærið mikið. Selin, sem tollinn áttu að greiða fyrir beit í landi Heiðar, eru örugglega sclin við Vömb og búsmalinn þá rekinn þaðan annað málið til beitar norður yfir Vatnsá. Þar sem sr. Jón segir „og þá fénaður féll“ o. s. frv., er trúlega átt við ,,móðuharðindin“ þó liðin væru 57 ár frá því þau hófust þar til hann reit þessa lýsingu sína. Þá getur einnig hafa orðið einhver fénaðarfellir eftir Kötlugosið 1823, því svo er að sjá, að askan frá því gosi hafi getað stórspillt sprettu það sumar þar sem hún féll að vori til. Sr. Jón tetur þess ekki getið, hvaða bæir það séu, er greitt hafi „seltoll" til Heiðarábúanda, en fornlegar rústir í nánd við Vömb, sem er hellir í Vatnsársundum, hafa fram til þessa verið kallaðar Reynissel. Þá vill svo vel til, að 7 árum síðar stendur í hinu svo nefnda „Jarðatali Johnssons 1847“, þar sem taldar eru uop smjör- tekjur prestsins í Reynis- og Höfðubrekkusóknum, „svo hafa og að undanförnu verið goldnir 2 f. d. (fjórðungar) smjörs í seltoll frá Reyni, en sem eigi lengur er krafinn.“ Þá hefur maður það svart á hvítu, að selin í hellunum í Vatnsársundum hafa verið a. m. k. frá Reyni, því þarna hlýtur að vera um sama seltoll að ræða og sr. Jón getur um. Þá telur sr. Jón þrjá bæi í Reynishverfi, sem nú brúka selsátur austan við Hciðarvatn, og hlýtur þar að vera átt við svo nefnt Dagmálasel, og verður þess nánar getið síðar. Þetta eru þær einu heimildir, sem ég hef orðið var við, að færðar hafi verið í letur um selveru í Hvammshreppi, en þær skýra líka nokkuð frá því, hvernig á stendur, að svo lítið er um ritaðar heimildir. Sem sagt, selin hafa yfirleitt staðið í landi þeirra jarða, sem þau áttu, eigið land verið notað til beitar og því ekki þörf á að bóka neitt þeim viðkomandi, en þarna var risinn ágreiningur um seltollinn og Stór-Heiðar klerkur búinn að missa 2 fjórðunga smjörs af tekjum sínum, og þá var tími til kominn að skjalfesta það. Goðasteinn 19

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.