Goðasteinn - 01.09.1972, Side 22

Goðasteinn - 01.09.1972, Side 22
Rústir Miðtnnguselja, séð til austurs. Reynisfjall og Reynishverfi í baksýn. Ljósm. E. H. Einarsson En þökk hafi sr. Jón fyrir að vera svo viljugur að geta fleiri selja en við kom því seli, er kom við tekjur prestsins. Þá eru eftir þær óskrifuðu heimildir, sem sagngeymd fólksins hefur varðveitt um selveru á liðnum öldum, og eru þar fyrir- ferðarmest öll örnefnin, sem tengd eru seljunum og enn geymast. Verður þeirra getið nánar í sambandi við hvert einstakt sel. Nokkrar munnlegar sagnir eru um fólk, sem í seli hafði verið, og verður hér getið nokkurra slíkra. Það hef ég fyrir satt, að skömmu fyrir 1850 hafi föðurforeldrar mínir verið í seli, afi minn, Þorsteinn Jónsson, selsmali í Mið- tunguseljum á Skammadalsheiði, en amma, Guðrún Guðbrands- dóttir, selstúlka í Selhólsseljum á Hvammsheiði. Þá hefur Haraldur Einarsson fyrrum bóndi í Kerlingardal sagt mér, að Sigurður Loftsson frá Hjörleifshöfða hafi tjáð sér, að þegar hann var 16 ára, hafi hann verið selsmali í Hafursey og hefur það þá verið sumarið 1854. Ennfremur hefur kona Haralds, Guðlaug Andrésdóttir sagt mér, að amma hennar hafi verið 20 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.