Goðasteinn - 01.09.1972, Blaðsíða 23
selráðskona í Kerlingardal. Síðast skal talin þjóðsagnakennd saga
frá Dagmálaseljum. Heimildarmaður Sigríður S. Jónsdóttir, Skeið-
flöt. Sögunnar mun nánar getið síðar.
II. Rústir og örnefni.
Vestan í heiðarbrúninni norður af Dalahögum er svæði, sem
nefnt er Kaldrananessel, en lítt sér þar fyrir mannvirkjum nema
við eina brík, en sel hafa þar eflaust verið. Sel annarra Dalajarða
hafa verið í Selhrygg í svonefndum Króki norðvestan við Sauða-
fell. Þarna sér vel til fornra vegglaga við bríkur og skúta. I
sumum bríkunum eru meitluð göt og snagar í móbergssillur,
sýnilega þar sem snúrur hafa verið festar til að hengja á föt og
jafnvel búsáhöld. Þarna hafa a. m. k. verið 3 sel og líklega 4.
í einni bríkinni er að sjá, að högginn hafi verið til bekkur til
að sofa á, en ekki hefur það verið mjúkur rúmbotn.
Líkur benda til, að ám hafi verið haldið til beitar norðaustur
af Króksbrúnum, norðan Sauðafells. Þar eru allgrösug daladrög
sem heita Smjördalir, ekki dónalegt nafn það og sennilega dregið
af því, að ærnar hafi þótt gefa góða nyt ef þær gengu þar, og
fjallagróðurinn þar þótt kjarngóður. Enn í dag koma þaðan
vænir dilkar.
Skammt norður af hábrún Skammadalskamba liggja torfur,
sem ýmist eru nefndar Nestorfur eða Seltorfur. Nokkur uppblást-
ur hefur orðið þar en þó mótar þar enn fyrir nokkuð fornlegum
rústum tveggja selja. Þau voru frá Skagnesbæjum, og enn ber
neðsti hluti götunnar, sem liggur upp Hólana, nafnið Selgata.
Á Skammadalsheiði eru á þremur stöðum leifar selja. Elztu
rústirnar eru norðan við heiðarbrúnina á torfu, sem heitir Brúna-
selstorfa, og bendir það til þess, að selin hafi verið kölluð Brúna-
sel. Þaðan hafa þau verið flutt, því þótt útsýni sé þarna fagurt, er
þar mjög næðingssamt. Næst hafa þau verið byggð við helli nærri
innst í Deildarárgili, sem nú ber nafnið Gamlasel. Skammt þaðan
eru þessi örnefni: Seltorfur, Selskurðir, Djúpiselskurður og Sel-
hryggsendi.
Síðast hafa selin verið flutt á svonefnda Miðtungu, á slétta
torfu milli tveggja gróðursælla gilja. Þarna eru allglöggar rústir
Goðasteinn
21