Goðasteinn - 01.09.1972, Side 27

Goðasteinn - 01.09.1972, Side 27
Séð til Kerlingardalsheiðar suðvestur af Káraseli. Fjöllin eru Hnitbjörg og Bárðarfell. Ljósm. E. H. Einarsson málnytupening í Skeifnadal í landi Víkurjarða, en Víkurbændur » höfðu til slægna bakka úr Fossengjum við Hvammsá (Víkurteiga). Selhryggur og Selhryggskverk eru örnefni sunnan við Skeifna- dal. Selmýri er norðan Selhryggs. Hryggurinn liggur til norðurs vestan við Víkurá allt á móts við Höttu norðanverða. Austan í honum, nærri nyrzt, eru móbergsklappir og nokkrar bríkur. Þar sér enn fyrir veggjahleðslum, en eitthvert rask hefur orðið þar á eldri mannvirkjum, því hlaðið hefur verið fyrir 2 aðal bríkurnar einhverntíma eftir að selin voru lögð niður og þær notaðar fyrir beitarhús. Þarna voru selin frá Suður- og Norður-Víkurjörðum Á Fagradalsheiði eru nokkuð greinilegar selrústir, þar hefur verið sel frá Fagradal, en ekki hafa geymzt örnefni í sambandi við I það, nema selsnafnið sjálft. Mikið hefur land spillzt þar, ef góð- ur kúahagi hefur verið þar nærri selinu. Bólstaðarsels er getið í lýsingu sr. Jóns. Það hefur verið við bríkur skammt fyrir norðan bæinn. Sr. Jón getur einnig selja frá Kerlingardal í hellum austan ár. Goðasteinn 25

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.