Goðasteinn - 01.09.1972, Qupperneq 29
nesi, hefur verið gott vatnsból í nánd, og svo virðist að þeim haíi
verið valdir staðir, þar sem sæmilega góður hestvegur var milli
sels og bæjar, enda hafa verið töluverðir flutningar þar á milli.
Ekki eru, svo ég viti, öruggar heimildir til um búsmala þann,
er við selin var hafður, en eftir því sem kúabeit var víðast hagað
fram eftir sumri, meðan tún voru illa eða ekki girt, virðist mega
slá því föstu, að bæði hafi verið hafðar ær og kýr við selin þann
tíma, sem í þeim var verið.
Sama máli gegnir um tímann, sem verið var í seljunum. Þar
um eru ekki til óyggjandi heimildir, meira að segja ber sr. Jóni
Sigurðssyni ekki heim í orðalagi um það, þar sem hann segir
í öðrum staðnum, að verið sé við selin fram að túnaslætti en á
hinum, að verið sé fram um túnaslátt, sem á nútíma máli myndi
þá þýða fram yfir túnaslátt, eða í meðal tíðarfari fram að 17.
sumarhelgi, og eftir því, hvernig kúabcit var hagað eftir að sel-
farir lögðust niður, tel ég það sönnu nær, því fram að síðari
árum voru kýr hafðar í úthaga nokkuð fram yfir túnaslátt, að
þeim var „hlevpt yfir“ sem kallað var, þ. e. látnar í túnin.
Hér að framan hefur verið getið selja á öllum jörðum í
Hvammshreppi nema eyðijörðunum Rofum og Engigarði og
örfáum jörðum í Reynishverfi, en ekki dreg ég í efa, að frá þeim
bæjum hafi einnig verið haft í seli, þótt heimildir skorti. Þá cr
eðlilegt, að sú spurning vakni, hversu lengi þessi þáttur hafi
haldizt í búskap hreppsbúa, en þá vandast málið, þar sem ckki
er til neinna ritaðra heimilda að grípa. Það má slá því nokkurn
veginn föstu, að selvera hafi lagzt niður um 1850. Samkvæmt því,
sem áður segir um selveru Sigurðar Loftssonar í Hafursey, hefur
selvera haldizt þar til 1854, og þar sem Hjörleifshöfðafeðgar þóttu
allfasthcldnir á forna hætti, væri ekki ólíklcgt, að þcir hefðu orðið
síðastir til að leggja af selveru.
Öllu crfiðara verður að færa rök að, hvenær selvera hafi fyrst
hafizt, hvort iandnámsmenn hafi flutt mcð sér þennan þátt bú-
skapar frá heimabyggðum sínum eða slíkt hafi verið tekið upp,
þegar búendum tók að fjölga og þrengjast tók í byggð.
Ég hef með könnun gosöskulaga reynt að komast að aldri
tveggja selrústa en ekki enn fcngið öruggt svar. Þó tel ég, að
Goðasteinn
27