Goðasteinn - 01.09.1972, Page 35

Goðasteinn - 01.09.1972, Page 35
Auðunn Ingvarsson frá Dalseli: Minningar Ég er fæddur í þennan heim kl. 6 að morgni hinn 6. ágúst 1869 í Neðra-Dal undir Eyjafjöllum, sonur Ingvars Hallvarðsson- ar bónda þar og Ingibjargar Samúelsdóttur frá Seljalandsseli. Sama dag var ég skírður af sóknarprestinum sr. Birni Þorvaldssyni í Holti. Ljósmóðir mín var Kristín Jónsdóttir í Steinmóðarbæ, áður húsfreyja á Seljalandi. Hún rciddi mig um kvöldið í kjöltunni að Steinmóðarbæ, en þar bjó þá sonur hennar, Sigurður Árnason, með konu sinni Kristínu Jónsdóttur, ekkju Þorsteins þess, sem varð fyrir eldingu úti í Landeyjum. Ég var 9 merkur, þegar ég fæddist. Mér var skilað úr fóstrinu í Steinmóðarbæ í októberlok og vigtaði þá 7 merkur, var svo magaveikur, að mér var ekki hugað líf. Blessað góða fólkið í Steinmóðarbæ hefur að líkindum ckki viljað svíkja nýmjólkina, sem það gaf mér, með því að blanda hana með vatni. Mest hjúkraði mér og lá undir mér, sem kallað var, Jódís systir húsmóðurinnar. Móðir mín mun ekki hafa legið á sæng nema fjóra daga, þegar ég fæddist, fór svo að ganga að heyskap. Það var víst gott fyrir hana þá að losna við mig, Goðasteinn 33

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.