Goðasteinn - 01.09.1972, Page 38

Goðasteinn - 01.09.1972, Page 38
kaldi. Við vorum rétt komnir fram á heiði til hússins, þegar rok- hvessti á norðan með öskubyl, ofan og neðan, og hörkufrosti. Tók Þorsteinn það ráð að reyna að komast niður að Neðra-Dalsánm og hafa hana fyrir leiðarvísi heim til bæja. Ég var illa búinn til að þola kafalsbyl, fór víst að heiman með vini mínum, svo að fáir eða engir vissu. Þorsteini varð að ráði að stinga kollinum á mér undir einfaldan jakka sinn. Tók ég svo föstu taki í buxna- streng hans og hélt því alla leið til bæjar. Bylurinn var svo mikill, að mér lá við köfnun, og oft gekk ég á hælana á Þorsteini. Á leiðinni heim heyrðum við öskur mikil uppi í Fagrafelii og héld- um helzt, að þau kæmu frá krumma. Það var þá raunar faðir minn að hrópa og kalla ef við kynnum að nema mál hans. Þor- steinn komst með mig heim heilu og höldnu um hádegisbilið. Man ég vel, hvað ég hló hátt, þegar ég komst inn í bæjardyrnar. Faðir minn kom svo löngu seinna heim og varð mjög glaður, er hann vissi, að við vorum komnir úr háskanum. Árni Indriðason bóndi í norðurbænum í Neðra-Dal fór af stað í þessa leit með föður mínum en komst ekki nema fram yfir Neðra-Dalsána, varð þar óglatt af nýársmatnum, seldi upp og sá þann kost vænstan að snúa við til bæjar. Ég man eftir einum vetri, frá þessu árabili, sem var mjög harður á útmánuðum. Mamma og sambýliskona hennar, Sigríður Magnúsdóttir, lentu þá í svipuðum kröggum og við Þorsteinn og verri þó. Með þeim var drengur, sem var hjá foreldrum mínum á fátækraframfæri, Jón Jónsson frá Lambhúshólskoti. Óvörum skail á kafaldsbylur með mikilli frosthörku. Var sá einn kostur að láta fyrirberast í heykumli, sem þarna var, þar til upp birti. Þær liðu enga nauð í þessari útilegu, hreiðruðu um sig í heyinu og skemmtu sér við eftirhermur og söng. Sigríður var mesta hermikráka, hafði mál úr hvers manns munni, ef henni bauð svo við að horfa. Jón litli barst illa af, kvartaði sáran um sult og kulda. I birtingu slotaði bylnum, svo þau komust heim úr þessari köldu vist og mátti þó ekki tæpara standa, því að vörmu spori brast á blind- bylur, sem stóð daginn og nóttina. Hléið var notað til að næra skepnurnar, sem þó ekki var auðhlaupið að, allir kofar hálffullir af snjó, einkanlega hesthúsin, scm öll voru hurðalaus. Brutust 36 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.