Goðasteinn - 01.09.1972, Page 41
færi sín, hamra og sleggjur. Bróðir hans var Árni, er bjó í Dals-
koti og Króki í Holtum. Á efri árum ferðaðist hann um Árnes-
og Rangárvallasýslur til að leiðbeina bændum með áveitu- og
framræsluskurði og svndi í því áhuga og dugnað. Mátti hann
heita brautryðjandi í áveitumálum. Ekki man cg, hver daglaun
hans voru, ef þau hafa þá nokkur verið. Fórnfýsi hans, ákafi og
dugnaður falla mér ekki úr minni. Áhugi föður míns á þessu
sviði mun mest hafa vaknað og þroskazt fyrir, að hann kynntist
þessum óvenjulega áhuga hjá Árna. Dalshverfið ber ljós merki
eftir athafnir föður míns. Þar voru rýrar slægjur, þýfðar og blaut-
ar. Nú eru þær eggsléttar, nær veltiþurrar og með síbreiðugrasi
árlega.
1 Króktúni bjuggu Þorleifur Árnason og Kristín Hansdóttir frá
Stóru-Mörk. Börn þeirra voru 5, Kristófer, er lengi bjó í Stóra-
Dal, giftur Auðbjörgu systur minni, Guðríður, gift Soffíasi Páls-
syni í Vík í Mýrdal, Helga prjónakona í Vestmannaeyjum, Högni
og Árni dóu úr barnaveiki á þriðja og fjórða ári. Þorleifur og
Kristín bjuggu við mikla fátækt á þessu auma hreysi en björguð-
ust þó framar vonum fyrir mikinn dugnað og góða fénaðarhirð-
ingu, misstu vart aldrei skepnur úr fóðurskorti. Kristín átti víst
mjög erfitt með að sjá svanga skepnu, tók bitann frá sér til að
næra kúna á, þegar við lá, að búið væri að sópa hcygarðinn innan
og grös ekki til útbeitar. Þorleifur var laghentur og ferðaðist um
til að smíða hjá bændum. Var honum oft greitt fyrir það í mat-
vælum, er hann bar heim á bakinu. Fyrir dugnað og þrautseigju
bjargaðist þetta heimili eins og mörg önnur á þeim árum. Kristín
var stórlynd en trygg og vinföst, blíð og skemmtin í viðræðu, þar
sem vinir voru annarsvegar. Hún var greind kona og gerði ofc
gott, bæði mér og öðrum, af litlum efnum.
í Dalskoti bjuggu, þegar ég man fyrst eftir mér, Sveinn Sveins-
son og Guðrún Ögmundsdóttir frá Auraseli. Sveinn drukknaði við
Vestmannaeyjar með Benedikt Andréssyni í Efriholtum, er þar
fórst með allri skipshöfn sinni 1889. Eftir fráfall Sveins giftist
Guðrún Agli Eyjólfssyni frá Seljalandsseli. Börn Guðrúnar og
Sveins voru Sigrún og Sveinn, er lengi var vinnumaður á Barkar-
stöðum. Hann giftist Guðleifu Guðmundsdóttur frá Vatnahjáleigu
Godasteinn
39