Goðasteinn - 01.09.1972, Síða 47

Goðasteinn - 01.09.1972, Síða 47
vel. Hann notaði munntóbak eða neftóbak og átti erfitt með að vera án þess. Blessunarorðum hans og fyrirbænum í garð minn gleymi ég ekki, meðan ég hef ráð og rænu. Trúi ég því, að þær rnuni mér til heilla hérna megin grafar og eigi þátt í farsælli komu í fyrirheitna landið. Jón Kristinn dó hjá Sveinbirni Jónssyni á Yzta-Skála í byrjun júlí 1909 og var jarðsettur 15. s.m. á Ásólfsskála. Faðir Svein- bjarnar, Jón Sveinbjarnarson frá Holti, sendi mér þá eftirfarandi bréf: „Yztaskála 13. júlí 1909. Heiðraði vin. Jeg er alveg pappírslaus, sem stendur. Þú mátt til með, að fyrirgefa mjer, að jeg hlýt að nota þennan iappa. Sveinbjörn sonur minn biður þig, sem elskaðan vin Jóns heit- ins Kristins, sem þú hefur víst frjett, að dáinn er, að heiðra jarðar- för hans með nærveru þinni og konu þinnnar næstkomandi fimmtudag hinn 15. þ.m. Jeg vakti í nótt yfir Guðrúnu í suðurbænum og fer nú að sofa. Vertu sæll og þínir allir. Jón Sveinbjarnarson“. Þórður Jónsson og Guðrún Magnúsdóttir ljósmóðir frá Dalseli bjuggu í Hamragörðum á uppvaxtarárum mínum. Foreldrar Þórð- ar voru Jón Sveinsson frá Sólheimum, Alexanderssonar og Ólöf Þórðardóttir frá Hvammi. Þau bjuggu í Hvammi og síðar í Mið- eyjarhólmi í Landeyjum. Jón dó öndverðan vetur og var jarðaður t Stóra-Dal. Líkið var flutt til kirkju nokkrum dögum fyrir jarð- arförina, því Markarfljót var þá gott yfirferðar. Um kvöldið leit Vigdís föðursystir mín út um baðstofugluggann og sá svip Jóns Sveinssonar í skímunni. Hún lét sér fátt um finnast og sagði: „Gefðu þig í ljósið, ef þú ert maður, en snáfaðu burtu, cf þú ert vofa“. Svipurinn varð þá að móðu og hvarf. Ólöf Þórðardóttir flutti að Hamragörðum til sonar síns. Hann dó ungur og harmaði Guðrún hann sárt. Ólöf tengdamóðir henn- ar var lífsreyndari og tók sorginni með ró. Guðrún sat með hönd- ur í skauti og grét mann sinn. Varð Ólöfu þá að orði: „Ekki að sorga, ekki að sorga, Guðrún mín. Farðu heldur að vefa. Maður Goðasteinn 45
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.