Goðasteinn - 01.09.1972, Síða 52
Höfundur vísunnar mun vera Eyjólfur Þorgeirsson í Króki, al-
þekktur hagyrðingur.
Sigurður flutti frá Eiði í Mosfellssveit að Seljalandi, eignarjörð
föður síns. Ég sat, ásamt fleiri börnum, á brúninni hjá Gljúfra-
búa, þegar Sigurður fór með fardagaflutning sinn þar fyrir neðan.
Þau hjón voru með trúss á tveimur hestum og höfðu eina kú í
togi, sem bættist í förina á Barkarstöðum. Á einum hesti var
djúpur söðull og í hann bundin tvö börn þeirra hjóna, Guðrún
á fimmta ári og Magnús Knútur á þriðja ári. Þarna leit ég í lítilli
fjarlægð konuefnið, sem eftir 19 ár varð konan mín.
Sigurður og Margrét byrjuðu búskap á Seljalandi við mjög
lítil efni. Jörðinni mun hafa fylgt ein kýr og sex ær, svo þetta var
lítill bústofn, en brátt jókst hann. Síðar um vorið fluttu til þeirra
þessi hjú, Sveinn Guðbrandsson og Hallbera kona hans, systir
Steinunnar Gísladóttur á Arngeirsstöðum, sem margir kannast við.
Hallbera var heyrnarlaus en skildi mál manna á varaburði, mjög
vel. Þau hjón áttu einn son, er Sveinbjörn hét, vel gefinn pilt.
Hann flutti með foreldrum sínum að Seljalandi og varð þar eftir,
er þau fluttu burtu nokkrum árum seinna. Hann trúlofaðist
Kristínu prjónakonu frá Heylæk, ég man ekki hvaða ár, en þá
bar það til að áliðnum slætti, að hann fór að hcimsækja unnust-
una. Hann reið brúnsokkóttum hesti, lötum og fótstirðum, er hann
hafði keypt um vorið af Ólafi Jónssyni í Stóru-Mörk. Sveinbjörn
varð þá fyrir því slysi, að hesturinn steig ofan á ristina á öðrum
fæti hans og fletti skinni af henni niður á tær. Varð Sveinbjörn
að leggjast í rúmið og lá í meiðslinu, það sem eftir var sláttar
uppi í Hlíð. Mikið var óslegið á Seljalandi, er þctta vildi til, en
faðir minn langt kominn með slátt. Fór ég þá sjálfboðaliði að
Seljalandi og vann þar kauplaust til sláttuloka. Er mér ógleyman-
legt, hve indælt það var þá að vera við heyskap á Seljalandsengj-
um og þó sérstaklega í Seljalandsheiðinni. Líklega hefur þetta
verið 1890 eða árið eftir.
Árið 1897, 29. okt., giftist ég Guðrúnu Sigurðardóttur og sett-
ist að á Seljalandi. Smá voru efni í byrjun búskapar. Um vorið
hlóð ég mér fjárhús fyrir 30-40 kindur neðanundir Kvíahrauni.
Hjálpaði Magnús Knútur mágur minn mér við það verk. Hlöðu
50
Goðasteimi